Heilsuvernd - 01.12.1952, Blaðsíða 23
HEILSUVERND
115
sumur, s.l. sumar í húsmæðraskólanum að Varínalandi
í Borgarfirði, og dvöldust þar rúmlega 200 manns um lengri
eða skemmri tíma. Hér er því kominn vísir að heilsuhæli.
Reynslan er ágæt eins og aðsókn sýnir, og mikil þörf fyrir
slíka stofnun hér á landi. Er þess að vænta, að félaginu
auðnist með tilstyrk góðra manna að hrinda þessu hug-
sjónamáli sínu í framkvæmd og heilsuhælið rísi sem fyrst
af grunni.
Brautryðjandi náttúrulækningastefnunnar hér er Jónas
Kristjánsson læknir, og hefir hann verið forseti Náttúru-
lækningafélags Islands frá stofnun þess. Jónas læknir
hefir kynnt sér þessa mikilsverðu, eða ef til vill mikils-
verðustu hlið læknavisindanna, betur en nokkur annar
íslenzkur læknir og farið víða um lönd til að afla sér nýrrar
og nýrrar reynslu og þekkingar í þeim efnum. Starf hans
að þessum málum mun sagan geyma og meta. Jónas
Kristjánsson á afmæli í dag. Ég flyt honum beztu afmælis-
kveðjur og veit, að ég mæli þá fyrir munn margra. En betri
afmælisgjöf getum vér ekki gefið honum í dag en þá að
kaupa merki Náttúrulækningafélags fslands. Sú gjöf er
þó fyrst og fremst gefin íslenzku þjóðinni, þvi að fyrir hana,
heilbrigði hennar og hreysti, hamingju og manndóm, er
Náttúrulækningafélag fslands að vinna.
Reykvíkingar! — íslendingar! Leggið góðu máli lið.
Eflið heilsuhælissjóð Náttúrulækningafélagsins. — Kaupið
í dag merki félagsins!
TIL LESENDA.
Meginþorri áskrifenda hefir þegar greitt áskriftargjaldið fyrir
1952, og er þeim hérmeS þökkuð skilvisin. Einnig færum vér
beztu þakkir öllum þeim, sem hafa unnið að viðgangi og útbreiðslu
ritsins á árinu með útvegun nýrra áskrifenda cða á annan hátt.
GLEÐILEG JÓL — FARSÆLT KOMANDI ÁR.