Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 26

Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 26
118 HEILSUVERND fæðisdag (kr. 11.04 sumarið 1951). Skiptist hann þannig (svigatölurnar frá árinu áður): Mjólk og mjólkurafurðir .... kr. 6.09 (5.34) 46.3% Grænmeti og rótarávextir .. — 4.48 (3.85) 34.1% Ávextir, kornmatur o. fl.....— 2.57 (1.85) 19.6% Hækkunin nemur alls 19%. Þrátt fyrir hækkun á vinnu- launum og ýmsum öðrum kostnaði var dvalargjöldum hald- ið í sama verði og sumarið áður, kr. 50,00 á dag. Eigi að síður varð reksturinn hallalaus. Að þessu sinni hefir ekki verið farið út í það að reikna út eða sundurliða næringargildi fæðisins, sem ætla má, að hafi verið svipað og sumarið áður (sbr. 4. hefti 1951). Lausleg athugun sýnir, að neyzla einstakra fæðutegunda hefir verið lík og þar er lýst, svo að niðurstöðurnar hljóta að vera áþekkar. Og enn er hér fengin staðfesting á því, að hreint mjólkur- og jurtafæði er ódýrara en fólk ímyndar sér. Ennfremur skal vakin athygli á því, að eftir því sem meira er borðað af hrámeti, þeim mun betur nýtist fæðan, menn þurfa minna að borða en ella, og fæðið verður þannig í senn bæði heilnæmara og ódýrara. Óheppilegar samgöngur ollu dvalargestum talsverðum örðugleikum, þar til beinar ferðir hófust að Hreðavatni seint í júlí. Ekki virtust þessi óþægindi þó hafa nein áhrif á aðsóknina. Þá var það til mikils baga, að vatnsból skól- ans þvarr um hríð, og ennfremur var ólag á aðrennsli heita vatnsins, svo að ekki var unnt nema að mjög litlu leyti að starfrækja svitaböð eins og til var ætlazt. Hinsvegar höfðu dvalargestir ókeypis aðgang að sundlaug, og aðstaða til útivistar og gönguferða var hin bezta, auk þess sem húsakynni voru hin prýðilegustu. Við hressingarheimilið störfuðu frá byrjun þær ung- frúrnar Benny Sigurðardóttir og Ólöf Vernharðsdóttir, húsmæðrakennarar, báðar nýútskrifaðar úr Húsmæðra- kennaraskóla íslands. Var sú fyrrnefnda forstöðukona, en Ólöf annaðist matreiðsluna. 1 byrjun ágúst varð hún að hverfa á brott, en þá tók við af henni þriðja skólasystirin,

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.