Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 27
HEILSUVERND
119
HIÐ FAGRA KYN ER HIÐ HRAUSTARA,
Karlmanni þykir lítill heiður ef sagt er, að hann sé ekki
kvensterkur, eða hafi ekki kvenmannsafl. Enda býr venju-
lega meira átakaafl í vöðvum karla en kvenna. Samt sem
áður virðast konur vera sterkari á ýmsum sviðum. Þær
eru hraustari, þ. e. gæddar meiri lífsþrótti og meiri mót-
stöðu gegn sjúkdómum og öðrum deyðandi öflum, eins og
eftirfarandi staðreyndir sýna. (Framhaid á bis. 120)-.
ungfrú Þorbjörg Jónsdóttir. Með því að þær höfðu ekki
haft tíma til að undirbúa sig eða kynna sér þá matargerð
og tilhögun, sem þarna var ráðgerð, var frú Dagbjört Jóns-
dóttir, matreiðslukennari, þeim til leiðbeiningar og aðstoðar
nokkra daga í byrjun. Aðrar starfsstúlkur voru Erla Jóns-
dóttir, Jóhanna Jóhannsdóttir og Svanhildur Bjarnadóttir.
Sunnudaginn 31. ágúst var skólanefnd húsmæðraskólans
að Varmalandi boðið til hádegisverðar ásamt forstöðukonu
skólans, ungfrú Vigdísi Jónsdóttur, hreppstjóra Stafholts-
tungnahrepps, Kristjáni Björnssyni, oddvitanum, Þorvaldi
Jónssyni, héraðslækninum, Þórði Oddssyni að Kleppjárns-
reykjum, Guðmundi Jónssyni, skólastjóra að Hvanneyri,
og konum þeirra. Framkvæmdastjóri félagsins bauð gesti
velkomna, lýsti höfuðtilgangi þess með nokkrum orðum
og þakkaði skólanefndinni fyrir að hafa látið félaginu þetta
húsnæði í té. Til máls tóku einnig frú Geirlaug Jónsdóttir,
formaður skólanefndar, Guðmundur Jónsson, skólastjóri,
Þórður Oddsson, læknir, og Steindór Björnsson frá Gröf
fyrir hönd dvalargesta. Luku ræðumenn lofsorði á þessa
starfsemi félagsins og árnuðu því allra heilla.
Óhætt er að fullyrða, að starfsemin í sumar hafi heppn-
azt vel og vakið mikla athygli, innanhéraðs sem utan. Að
því stuðlaði m. a. nærvera Jónasar læknis Kristjánssonar,
sem flutti tvívegis erindi í Stafholtskirkju að lokinni guðs-
þjónustu og gekk á fjöll sem ungur væri (sbr. síðasta hefti).
Vonandi ber félagið gæfu til að geta haldið þessu sumar-
starfi áfram. B. L. J.