Heilsuvernd - 01.12.1952, Page 28
120
HEILSUVERND
1. Konur verða 2—5 árum langlífari en karlar. Að nokkru
getur þetta stafað af því, að þeim er síður hætt við slysum,
en á móti koma að vísu ýmsar afleiðingar í sambandi við
meðgöngu og barnsfæðingar, jafnvel dauðsföll. Ennfremur
eru langlífishorfur kvenna nokkru meiri en karla, eftir að
komið er yfir sextugsaldurinn, og munar það hálfu til
heilu ári. (Sjá grein um lengingu mannsævinnar í Heilsu-
vernd 1951, 4. hefti).
2. Á fyrsta aldursári eru sveinbörn viðkvæmari en mey-
börn, og sama máli gegnir um börn cg unglinga yfirleitt,
að stúikum verður síður en piltum meint af ýmiskonar
lirakningum og áföllum.
3. Konum, sem ganga með sveinbörn, er hættara við ó-
höppum, svo sem fósturlátum, fæðingum fyrir tímann,
dauða fóstursins og andvana fæðingum, heldur en ef um
meybörn er að ræða. Og meybörn fædd fyrir tímann hafa
meiri lífsmöguleika en sveinbörn.
4. Dánartala úr smitandi sjúkdómum, þar á meðal berkl-
um og lungnabólgu, er 40—50% hærri hjá körlum en
konum.
5. Þótt of hár blóðþrýstingur sé tíðari meðal kvenna en
karla, virðast þær þola hann betur, þvi að miklum mun
fleiri karlar en konur deyja úr sjúkdómum í hjarta og
æðum.
6. Konum er að vísu hættara en körlum við sjúkdómum
í lifur og gallblöðru. En hinsvegar eru ýmsir sjúkdómar í
meltingarveginum tíðari meðal karfa, svo sem botnlanga-
bólga (helmingi tíðari) og sár í maga og skeifugörn (þrisv-
ar sinnum tíðari).
7. Kvendýr virðast einnig hraustbyggðari en karldýr, eins
og þessi tilraun sýnir: Sterkt miðflóttaafl var látið verka
á ýmsar dýrategundir (mýs, ketti, kanínur, apa). Karldýr-
in drápust næstum með tölu, en 90% kvendýranna lifðu
tilraunina af.
8. Allskonar vanskapnaður er miklum mun tíðari hjá
körlum en konum. (Vie et Santé).