Heilsuvernd - 01.12.1952, Side 29
HEILSUVERND
121
ER ORÐTAKIÐ „FULLIR KUNNA FLEST RÁГ
ÖFUGMÆLI.
Hundatemjari einn gerði tilraun á tveimur veiðihundum til f>ess
að ganga úr skugga um, hvaða matmálstimar hentuðu þeim bezt.
Hann gaf þeim til skiptis, öðrum þeirra á morgnana, en hinum
ekki fyrr en að kvöldi, eftir að komið var úr veiðiför.
Sá hundurinn, sem engan mat fékk að morgni, reyndist alltaf
betur, var viljugri, betri að rekja slóðir, blýðnari og fljótari.
Hundurinn, sem morgunmat fékk, var þyngri á sér og latari en
samt sem áður þreyttari að kvöldi.
Hermenn liinna fornu Grikkja og Rómverja borðuðu aðeins
eina máltíð á dag, og það að kvöldi dags. Þetta er ekki eins mikið
undrunarefni og í fljótu bragði kann að virðast. Fæðan er marga
klukkutima að meltast. Og sú starfsorka, sem líkaminn notar dag
hvern, er að mildu leyti unnin úr þvi, sem borðað var daginn áður.
Menn verða þungir á sér, er þeir hafa matazt. Það eru ekki
einungis þyngslin af matnum í maganum, sem þessu valda, held-
ur og hitt, að meltingarstarfið er mjög orkufrekt og rænir orku frá
öðrum störfum.
Því er bezt að borða sem minnst fyrri hluta dags og aðalmáltið-
ina að kvöldi, þeg'ar dagsverki er lokið. Með þvi móti er séð fyrir
hentugri verkaskiptingu. Maðurinn rækir störf sín, ótruflaður að
mestu leyti af meltingarstarfinu, sem er erfiðara en flesta grun-
ar og rýrir hin ytri afköst. Að kvöldinu og nóttunni getur svo
líkamin gefið sig óskiptan að meltingu fæðunnar, jafnframt því,
sem hann hvilist að öðru leyti.
Reynslan hefir kennt mönnum, að bezt er að borða ekki þung-
ar máltiðir að morgni dags. Og tilraunir með veiðhundana, reynsla
rómversku hermannanna og margra annarra fyrr og síðar, hefir
fært okkur heim sannin um, að enginn skaði er skeður — öðru
nær — þótt við strikum morgunverðinn að mestu eða öllu leyti
út af matseðli okkar. Og heppilegasti morgunverðurinn er tvímæla-
laust fyrir flesta nýir ávextir og ávaxtadrykkir, eða grænmetis-
drykkir, sem flytja líkamanum léttmelta næringu og gnægðir
steinefna og fjörefna í náttúrlegri mynd.
LlKAMSÆFINGAKERFI,
ætlað fólki á öllum aidri. og þó sérstaklega konum, er nýlega
komið út i íslenzkri þýðingu, og fylgja margar myndir til skýr-
ingar. Það tekur aðeins 5 mínútur daglega, er létt og auðvelt
og þó talið geta verið veigamikill þáttur í því að varðveita
lieilsuna og fjaðurmagn æskunnar. (Sjá augl. á bls. VIII).