Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 30

Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 30
122 HEILSUVERND GARÐYRKJUSÝNINGIN. Garðyrkjufélag íslands bauð N.L.F.f. þátttöku i sýningu þeirri, sem haldin var í skála Knattspyrnufélags Reykjavíkur við Kapla- skjólsveg dagana 2(i. sept. til 5. okt. 1952. í deild félagsins voru sýndar ýmsar matvörur, svo sem lieilt og spírað korn, nýtt mjöl, baunir, brauð úr nýju mjöli o. fl. Þar voru á boðstólum grænmetis- drykkir, brauð og lirásalöt, og sýnikennslu annaðist ungfrú Benny Sigurðardóttir, sem hafði á hendi forstöðu deildarinnar. Við opnun sýningarinnar var hátt á annað hundrað gesta, þeirra á meðal forseti íslands og forsetafrú. Þar flutti Arnaldur Þór, formaður Garðyrkjufélags íslands, ræðu og vakti athygli á eink- unnarorðum sýningarinnar, sem voru þessi: „Garðurinn er heilsu- lind heimilisins“. Forsætisráðherra, Steingrimur Steinþórsson, opnaði sýninguna. í ræðu sinni lagði hann áherzlu á aukna neyzlu grænmetis og gat þess sem dæmi um breyttan hugsunarhátt al- mennings, en nú þætti ekki lengur minnkun að því að vera „gras- æta“. Gunnar Thoroddsen borgarstjóri flutti ávarp, og loks mælti Björn L. Jónsson nokkur orð, lýsti þeim réttum, sem á boðstólum voru og gestir beðnir að þiggja í sýningardeild N.L.F.Í.; hann vakti athygli á þeirri afturför i mataræði íslendinga, að heima- mölun korns lagðist smátt og smátt niður, og taldi hana eiga að komast aftur til vegs og virðingar. Þá þakkaði hann sýningar- nefndinni fyrir að hafa gefið félaginu kost á að taka þátt i sýn- ingunni og lauk máli sínu með þessum orðum: „Allir ættu að geta sameinazt um kjörorð N.L.F.Í.: Heilsuvernd er betri en lækning, ])ótt mcnn kunni að greina á um leiðirnar. En aðalmarkmið náttúrulækningastefnunnar er heilsuvernd, i víðtæk- ustu merkingu þess orðs, í líkamlegum, andlegum og siðferðilegum skilningi“. Enda þótt sýningin kostaði félagið nokkra fjárhagslega fórn, má óhikað fullyrða, að beinn og óbeinn ávinningur hafi farið langt fram úr útgjöldunum, sem ýmsir velviljaðir aðilar og fórn- fúsir félagsmenn áttu sinn þátt í að gera sem minnst. Er sérstök ástæða til þess að þakka Sveinsbakarii og forstjórum Sölufélags garðyrkjumanna og Mjólkursamsölunnar fyrir stuðning þeirra, svo og Sigurði Bjarnasyni rafvirkjameistara fyrir ómetanlega hjálp, að ógleymdum félagskonunum Guðrúnu Einarsdóttur og Ingibjörgu Guðbjarnadóttur og sjálfri sýningarnefndinni, þeim Böðvari Péturssyni, Lárusi Péturssyni og Steinunni Magnúsdóttur, sem öll lögðu fram mikla og tímafreka vinnu við sýninguna.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.