Heilsuvernd - 01.12.1952, Side 32
124
HEILSUVERND
EITRUÐ LITAREFNI I MAT OG FÖTUM.
I ameríska tímaritinu Health Culíure (Heilsurækt) birtist ný-
lega grein um orsakir krabbameins. Er m. a. rætt um þá hættu,
sem stafar af vaxandi notkun eiturefna í matvælum og viðar. Eitt
liið hættulegasta þeirra er anilin, sem notað er í fata- og matarliti.
Það er allcunna og viðurkennt af læknavísindunum, að langvar-
andi áhrif eiturefna geta valdið krab'bameini í ýmsum líffærum.
Er þá um að ræða mjög lítið magn eiturs, minna en svo, að það
valdi sýnilegum sjúkdómseinkennum í livert sinn. En fái eitrið
að verka nógu stöðugt og lengi, i tíu til 20 ár, verður afleiðingin
oft og tíðum krabbameinsvöxtur, sem leiðir oftast til dauða.
Margir þekktir visindamenn hafa rannsakað áhrif anilíns á
starfsfólk í litunarverksmiðjum og aðra, sem verða fyrir áhrifum
þessa efnis. Ber þeim vel saman um niðurstöður sínar. Einna
mest hætta stafaði af efni þessu, ef anilíngufa blandaðist lofti,
sem menn önduðu að sér. Anilínið kemst einnig gegnum húðina.
Fatnaður er litaður með anilínlitum. Að vísu á að vera þannig
frá þeim gengið, að þeir leysist ekki upp. En á því getur orðið
misbrestur. Er þá hætt við, að litur úr fötunum leysist upp, þegar
menn svitna, og siist síðan i gegn um luiðina. Þannig eru þess
mörg dæmi, að útbrot koma á háls eða fótleggi undan loðkrögum
eða sokkum.
Meiri og' almennari hætta stafar þó frá matarlitunum, sem skipta
mörgum tugum og' eru flestir meira og minna skaðlegir, enda eru
það oft tjöru- eða anilínlitir. Þeir eru notaðir í kökur og sælgæti,
allskonar drykki, smjör og smjörliki, kjötafurðir ýmsar, niður-
soðin matvæii o. s. frv. Likt er að segja um allskonar geymsluefni,
sem ætluð eru til varnar skemmdum í matvælum. Slíkar skemmd-
ir stafa jafnan frá bakteríum eða öðrum snýkjudýrum. Það er
mjög líklegt, að efni, sem drepa bakteriurnar, hljóti einnig að
hafa skaðleg álirif á frumur líkamans.
Tilraunir hafa verið gerðar á músum og kettlingum til að rann-
saka álirif ýmissa geymsluefna. Dýrin fengu ekki annað að eta
en matvæli menguð slíkum efnum, og þetta leiddi þau öll til dauða
á einum fimm vikum. Yið krufningu fundust skemmdir i melt-
ingarfærum, nýrum og hjarta.
Eitt sinn var og gerð tilraun á nokkrum ungum mönnum. Þeir
tóku inn mjög smáa skammta af þessum efnum daglega i 3 vikur.
En þá voru komin i ljós greinileg sjúkdómseinkenni i nýrum og
meltingarstarfi.
Greininni í ameríska tímaritinu lýkur með nokkrum heilræðum,
sem m. a. eru i því fólgin að forðast lituð föt innst klæða, svo
og matvæli blönduð geymslu- eða litarefnum.