Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 33

Heilsuvernd - 01.12.1952, Síða 33
HEILSUVERND 125 FÉLAGSFRÉTTIR. Kynningarfund hélt Náttúrulækningafélag Reykjavíkur í Tjarnarkaffi mánudaginn 27. okt. 1952. Böðvar Pétursson kennari setti fundinn kl. 21 og stjórnaði honum. Fundurinn hófst með því, að Jónas Kristjánsson, læknir, flutti erindi um ræktun heils- unnar. Því næst var sýnd sænska talmyndin Leiðin til heilbrigði, en áður skýrði B. L. ,1. myndina. Þá lék Skúli Halldórsson ú píanó nokkur frumsamin lög. Björn L. Jónsson, veðurfr., las upp frásögn eftir frú Sólveigu Jónsdóttur, 82 ára, þar sem hún skýrði frá því, hvernig hún læknaðist af eksemi og gigt fyrir 5 árum. Mælti Sólveig siðan nokkur orð í s'ambandi við það, og undruðust allir, hve ungleg og ern hún var. — Þá las Þorvaldur Jónsson verzlunarmaður upp þýddan bókarkafla eftir amerískan lækni um meðferð ungbarna, og tvær stuttar frásagnir í því sambaiuli. Að því loknu kynnti B. L. .1. fyrir fundarmönnum útgáfubækur félags- ins, sem voru til sölu að fundi loknum. Að lokum þakkaði fundarstjóri fundarmönnum fyrir komuna og sagði síðan fundi slitið. — Fundinn sóttu rúmlega 100 manns. Talsvert seldist af bókum, og nokkrir gerðust félagsmenn og áskrifendur að Heilsuvernd. Heilsuverndarfélag Súgfirðinga hélt aðalfund sinn 19. maí 1952. Á starfsárinu höfðu verið haldnir 4 félagsfundir, og á tveimur þeirra var félagsvist og önnur skemmtiatriði. Á aðalfundi var sam- þykkt tillaga um að hefja garðrækt á næsta vori. „Rætt var um mataræði á víð og dreif, heilsusamlega lifnaðarhætti yfirleitt, böð og hollustu þeirra ásamt auknu hreinlæti í hvívetná“, segir í skýrslu formanns, sem lýkur henni með þessum orðum: „I litlu umhverfi verður félagsskapurinn fremur umsvifalitill og þróunin hæg. Hitt dylst þó ekki, að um nokkura vakningu og hyggju er hér að ræða til heilbrigðara lífs á ýmsa lund í mataræði meir en áður var“. Formaður var endurkjörinn Aðalsteinn Hallsson, skólastjóri, og með honum i stjórn Salberg Guðnuindsson (gjaldkeri), séra Jóhannes Pálmason (ritari), Guðni Ólafsson og María Friðriks- dóttir. Formaðurinn tók upn þá nýbreytni að semja fundarboð í Ijóðum, og fer fyrri hluti þess hér á eftir: Nú Heilsuvernd súgfirzka halda vill fund og hans til í þriðja sinn boðar, en félaga veikur er líkami og lund, ef lögeggjan þessi ei stoðar.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.