Heilsuvernd - 01.12.1952, Blaðsíða 35

Heilsuvernd - 01.12.1952, Blaðsíða 35
HEILSUVERND 127 LÆKNIRINN HEFIR ORÐIÐ. Náttúrleg matvæli bezt. Próf. Sherman, víðkunnur amerískur næringarfræðingur, segir: „Kalkþörf líkamans ætti ekki að fullnægja með kalklyfjum, lield- ur með aukinni neyzlu kalkauðugra fæðutegunda, svo sem mjólkur og grænna blaðjurta". Ennfremur: „Um það er engum blöðum að fletta, að ef við nærðumst eingöngu á gérvifæði samsettu af öllum þekktum nær- ingarefnum í hreinu formi, kæmu fyrr eða síðar í ljós vanfóðr- unareinkenni vegna skorts á einhverjum óþekktum efnum eða eiginleikum. Hitt er jafnvíst, að ef við leggjum okkur til munns aðeins náttúrlegar og óspilltar fæðutegundir, mun líkaminn fá nægilegt magn alira þekktra og óþekktra næringarefna". Sherman segir enn: „Tilráunir benda mjög eindregið til ]iess, að ef viðurværið í lieild er skynsamlega samsett, sé járnþörf líkamans talsvert minni en talið liefir verið“. (Rude Health). Hár aldur. Amerískur læknir, D. H. Kress, segir svo frá: Vinur minn, séra R. C. Porter, fór fyrir fáum árum til Filippseyja og heimsótti þar innfæddan mann 13G ára gamlan. Öldungurinn fór á fætur kl. G á hverjum morgni. Hann var herðabreiður, beinvaxinn og krafta- legur og sagði prestinum, að skírnarvottorðið gæti liann fengið að sjá í kirkjunni. Hann kvaðst alltaf hafa lifað á aldinuin, hneturn, kornmat og grænmeti, aldrei borðað kjöt og aðeins lítið eitt af fiski. (Úr Health Culture). LEITAÐ Á RÖNGUM STAÐ. Venjulega leita læknar orsaka sjúkdómsins í hinum sjúka líkama. Þessvegna tekst svo sjaldan að finna þær. Orsakirnar eru nefnilega sjaldnast innan likamans •— þar eru afleiðingarnar — heldur eru þær fólgnar i röngum lifnaðarháttum. Menn óttast sjúkdóma. Ef menn óttuðust ranga lifnaðarhætti að sama skapi, væri minna um sjúkdóma. SKRIFSTOFA N.L.F.I. hefir verið að Mánagötu 13 siðari hluta þessa árs, en í atliugun er að fá hentugra húsnæði. — Skrifstofumaður er Þórður Hall- dórsson frá Litlu-Skógum í Borgarfirði. — Skrifstofan er opin daglega kl. 3—5 e. h.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.