Heilsuvernd - 01.04.1953, Page 6
HEILSUVERND
Jónas Kristjánsson:
Hversvegna
vaxa
hrörnunarkvillar ?
Læknavísindin eru á öruggri framfara- og fullkomnun-
arleið, að dómi lækna sjálfra. En þrátt fyrir það vaxa
hrörnunarsjúkdómar stöðvunarlaust einn áratuginn eftir
annan. Á hverjum fjórðungi aldar þarf að tvöfalda að
stærð hæli fyrir sálsjúka menn. Svipað má segja um flesta
aðra hrörnunarsjúkdóma. Vér getum fullyrt þetta um
magasár, botnlangabólgu, hjartasjúkdóma og krabbamein
og marga aðra sjúkdóma. Að vísu fjölgar fólkinu. En hrörn-
unin vex hraðar, og nú er svo komið, að síðustu og full-
komnustu rannsóknir, t. d. hin svokallaða Peckham-rann-
sókn í Englandi, sýna, að 91% allra manna eru sjúkir
eða komnir svo langt út á þá leið, að greina má hrörn-
unareinkenni. Svo mikið er víst, að eitt af tvennu er rangt,
að um raunverulegar framfarir læknavísindanna sé að
ræða, eða 'hitt, að sjúkdómarnir færist í vöxt. En sú stað-
reynd er óhagganleg, að þegar menn voru kallaðir til her-
skoðunar í Englandi fyrir nokkru, varð sú raunin á, að víða
var ekki unnt að nota til hernaðarstarfa nema 3 af hverjum
10, eða aðeins 30%, í verksmiðjuhverfum borganna. Or-