Heilsuvernd - 01.04.1953, Qupperneq 30

Heilsuvernd - 01.04.1953, Qupperneq 30
HEILSUVERND Blóðþvottur. Nýlega hefir verið frá því skýrt, að svissneskur læknir, dr. P. Wehrli í Locarno, hafi fundið aðferð til að hreinsa blóð manna. Sjúklingurinn er látinn hafa sérstakt matar- æði um hrfð og þarmarnir hreinsaðir. Úr honum eru síðan teknir 2 til 5 desílítrar af blóði, sem er hreinsað með súrefni í sérstökum áhöldum og er þá orðið ljósrautt, en var áður dökkrautt vegna kolsýru og annarra öhreininda, sem í því voru. Þá er blóðið haft í kvarzljósi í eina klukku- stund. Loks er það síað og loftbólur teknar úr því, og síðan er því dælt inn í æðar sjúklingsins á ný. Hreinsun þessi er talin hafa valdið miklum.stakkaskipt- um á útliti og heilsu margra sjúklinga. Sjúklingurinn verð- ur unglegri í útliti, litarháttur verður ferskari, og hrukkur hverfa. Sjónin batnar, svo að jafnvel gamalt fólk getur lagt niður gleraugu. Líðan öll batnar, og dæmi eru til þess, að sjúkdómar eins og æðakölkun, illkynjuð æxli og lam- anir hafi læknazt, þótt öll von væri úti um bata með öðr- um aðferðum. Eftirtektarvert er það, að bati hefir reynzt skjótari en ella hjá þeim mönnum, sem lifa á jurtafæðu, og er það talið hafa stafað af því, að likami þeirra hafi ekki hlaðizt eiturefnum í jafnfíkum mæli og hjá öðrum. Þá er þess getið, að af 'hinu óhreinsaða blóði þeirra, sem eru mikið veikir, m. a. krabbameinssjúklinga, sé megn ódaunn. Vafalaust er enn of lítil reynsla komin á þessa nýstár- legu lækningaaðferð til þess að dærnt verði um gildi henn- ar. Vera má t. d., að hér fari á sömu leið og um mörg ný lyf, að í ljós komi annmarkar, þegar tímar líða og blóð- þvottur verður almennari. Hugsanlegt er, að hreinsunin valdi breytingum á blóðinu eða eiginleikum þess, og af hljótist, fyrr eða síðar, fylgikvillar í einni eða annarri mynd. En megingallinn við aðferðina er sá, að hún er sjúk-

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.