Heilsuvernd - 01.04.1953, Qupperneq 35

Heilsuvernd - 01.04.1953, Qupperneq 35
HEILSUVERND 31 Læknirinn hefir orðið. Eggjahvítuþörfin. Hinn kunni sænski næringarfræðingur, dr. Ragnar Berg, segir svo í grein, sem hann ritar nýlega fyrir sænska tímaritið Waer- lands-Mánads-Magasin: „Enn er um það deilt, hve mikið Mkaminn þurfi af eggjahvítu í daglegu fæði. Þannig telur National Research Council (Rannsókn- arráð) í Bandaríkjunum daglega eggjahvituþörf 70 gr fyrir fuli- orðinn mann, sem vegur 70 kg, og margir halda fast við hinar löngu úreltu kröfur Voits og Rubners um 100—120 gr. Með rann- sóknum komst ég að þeirri niðurstöðu þegar árið 1914, að ef fæðan væri rétt valin, kæmist líkaminn vel af með 30 gr á dag, og 40 gr væru kappnóg. Árið 1946 gerðu fjórir vísindamenn til- raunir um langan tima með 25 jurtaætur, sem nærðust á brauði, smjöri, mataroiíu, grænmeti og ávöxtum og fengu daglega aðeins 33 gr af eggjahvítu og vegnaði vel.“ Þessar niðurstöður cru í ágætu samræmi við árangur af tilraun- um liins heimsfræga læknis og vísindamanns Hindhedes (sjá 4. hefti 1950). Dr. R. Berg heldur áfram: „Nýlega hefir sænskur prófessor sagt, að ekki væri hægt að lifa án dýrafæðu, vegna þess að eggja- hvitan í jurtafæðu sé ófullkomin. Þessi skoðun er alröng, og jurta- ætur þurfa á engan hátt að búa við skort eggjahvítu, jafnvel ekki þó að þeir noti hvorki mjólk né sojabaunir. Með því að borða vel af kartöflum og grænum blaðjurtum, er hægt að sjá líkamanum fyrir nógri fyrsta flokks eggjahvítu. Borði menn svo auk þess eitt glas af mjólk eða 20 gr af mjólkurosti daglega, fá menn ríf- legan aukaskammt af eggj ahvítu.“ Nýjar sannanir fyrir eituráhrifum bleikingarefna í hveiti. í enska læknablaðinu The Lancet, í desember 1951, segir dr. B. Stross, að bleikingarefni það, sem kallað er agene (köfnunarefnis- tríklórið), hafi verið prófað á sex tegundum tilraunadýra (hafði áður verið reynt á hundum, köttum og öpum, sbr. 1.—2. h. 1948). Á öllum tilraunadýrunum olli það krampaköstum og öðrum tauga- veiklunareinkennum. Sir E. Mellanby skýrir svo frá, að auk þess sem agene afliti hin gulu litarefni mjölsins, valdi það breytingum í nokkrum hluta af eggjahvítuefnum þess og geri þau að eiturefnum fyrir allar skepn- ur. „Þessar stórfelldu breytingar á hinum náttúrlegu matvælum eru að líkindum ein ástæðan fyrir aukningu meltingarsjúkdóma, svo sem botnlangabólgu og magasára“.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.