Heilsuvernd - 01.04.1953, Blaðsíða 13

Heilsuvernd - 01.04.1953, Blaðsíða 13
HEILSUVERND 9 Hér hefir verið rætt um „lífið í náttúrunni", en í dýpri skilningi skoðast öll náttúran lifandi, en aðeins á mismun- andi stigi. Hin lífræna ræktunaraðferð byggist á skoðuninni um samstarf í alnáttúrunni, ekki síður en sarnkeppni, enda er samkeppnin nokkurskonar samstarf. Tegundirnar bæta hver aðra upp og eru hver um sig liður í heild náttúrunnar. I náttúrunni fer fram hringrás efna í sambandi við líf- verurnar, og orsakast hún af uppbyggingu efnisins og sundrun, svo sem kunnugt er. Heilbrigðir vefir lífveranna sundrast ekki. Það er hinn endurskapandi kraftur lífveranna, sem hindrar sundrun- ina. Þegar plantan t. d. fer að fölna og rotna, þá orsakast það af þverrandi lífskrafti, sem opnar vírusum, bakteríum, sveppum og skordýrum leið. Það er hlutverk ræktunar- mannsins að halda plöntunum á því stigi lífsþróttar, að þær verði ekki spilliöflum að bráð. Takist það ekki, þá er lífsþróttur þeirra neðan við það lágmark, að þær séu hæfar til neyzlu mönnum og æðri dýrum, sem geta ekki haldizt heilbrigð, þegar til lengdar lætur, á slíkri fæðu. Þar við bætist, að eiturefni þau, sem beitt er í nýtízku ræktun, eru beinlínis skaðleg fyrir mannslíkamann. Kopar, arsen og kvikasilfur í ýmsum samböndum eru notuð í vax- andi mæli, enda þótt vitað sé, að þau eru hættuleg fyrir manninn. Ávaxtatré eru úðuð með tjörulyfjum, enda þótt menn viti, að tjara getur orsakað krabbamein. Plöntúhor- món eru efni til aukins vaxtar, en í vissum tegundum jurta valda þau sjúklegum vexti, svo að frumurnar springa og plönturnar falla saman og deyja. Með þessum hormónum eru kornakrar sumsstaðar sprautaðir. Menn vita ekki, hvaða áhrif þetta hefir á líkama manna, sem kornsins neyta, því að stutt er síðan farið var að nota þessi hormón. Líklegt er þó, að eðli vaxtarhormónanna færist úr korn- inu til vissra frumuvefja og líffæra og valdi bólgum. Eiturlyf gegn skordýrum eru framleidd sterkari og sterkari og eru nú orðin svo hættuleg, að þeir, sem sprauta,

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.