Heilsuvernd - 01.04.1953, Blaðsíða 14

Heilsuvernd - 01.04.1953, Blaðsíða 14
10 HEILSUVERND verða helzt að verja sig með gasgrímum, gúmmífötum og með því að smyrja húðina feiti. Matjurtir eru einnig spraut- aðar með þessum eiturlyfjum. Má nærri geta, hvort þessi meðferð hefir ekki áhrif á þær til að rýra gildi þeirra til manneldis. I náttúrunni hefir sérhvað sína þýðingu og tilætlun. Náttúran leitar eftir samræmi og vinnur á móti ein- hæfni. Ef of mikið eða of lítið er af vissum efnum í jarð- veginum, kemur þar fram alveg sérstakur gróður, sem þrífst undir vissum, einhæfum skilyrðum. Á styttra eða lengra árabili jafnar þessi gróður einhæfnina, þar eð hann veldur vissum efnabreytingum í jarðveginum. Hið svo- kallaða „illgresi" verður að skoðast frá þessu sjónarmiði. Samt skyldu menn ekki láta illgresi vaxa óhindrað í rækt- unarlandi sínu, en ættu að athuga illgresið og þær bend- ingar, sem það getur gefið. Á vel ræktuðu landi er auð- velt að halda illgresinu niðri með venjulegum aðferðum, án úðunar með illgresiseyðingarlyfjum. Slík lyf auka á misræmið í jarðveginum, og þess verða ræktunarplönturnar að gjalda og menn og dýr, sem neyta þeirra. Nærtækt dæmi er úðun gegn arfa í gulrótagörð- um. Bragðið af gulrótunum ber greinilegt merki olíu, og hollustan er eftir því. Af þessum sökum er illgresiseyðingu með hverskonar efnum hafnað í hinni lífrænu ræktunar- aðferð. (Niðurlag í næsta hefti). LÉLEG HERMANNAEFNI AFLEIÐING RÁNYRKJU. Af hermannaefnum, sem komu til læknisskoðunar í suðurríkj- um Bandaríkjanna í síðustu heimsstyrjöld, varð að gera 70% afturreka vegna andlegra og líkamlegra galla. í fylkinu Colorado reyndust hinsvegar um 70% nýliðanna tækir í herinn. Þessi mis- munur er talinn stafa af því, að í suðurríkjunum er rányrkja i algleymingi með tiibúnum áburði og allskonar eiturlyfjum til að halda jurtasjúkdómum i skefjum. íbúar fjallafylkisins Colorado halda hinsvegar fast við hinar gömlu og góðu ræktunaraðferðir.

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.