Heilsuvernd - 01.04.1953, Síða 19
HEILSUVERND
15
Ég fylgdi samvizkusamlega öllum settum reglum, og að
sex vikna dvöl lokinni, fann ég mér til mikillar gleði, að
breyting var að koma á heilsuna til hins betra; svefninn
var að lagast, og meltingarlíðanin sömuleiðis; blóðprófun
sýndi þá 92%. Nú þurfti ég ekki lengur að taka svefn-
pillur, sem ég áður gat ekki komizt hjá að nota næstum
reglubundið þriðja hverja nótt; ég þurfti heldur aldrei á
brjóstsviðadufti að halda. Og þegar þetta er ritað, hefi
ég lifað eitt ár á hráfæði að ráði Jónasar Kristjáns-
sonar, og iðrar mig þess ekki. Nú mundi ég sakna þess
meir en soðnu fæðunnar, er ég skildi við hana fyrir einu
ári. Ég hefi nú loks prófað af eigin reynd að lifa á hráu
grænmetisfæði eingöngu, og fundið árangurinn. Og ég get
því sagt, að orðin ,,móðursýki“ og „ofstæki“ eiga þar ekki
heima.
Hefi ég nú á þessu eina ári eignazt meiri líkams- og
sálarstyrk en ég hefi verið að tapa á mörgum síðustu ár-
um. Einrænis- og minnimáttarkenndin er að miklu horfin,
og óttinn við martröð sömuleiðis. Ég hefi ekki komizt
í það illa ástand síðan fyrsta hálfa mánuðinn í hressingar-
heimili N.L.F.I. Og nú hefi ég kastað öllum A-, B-, C- og
D-pillum ásamt kalki, magnýl og taugaróandi lyfjum í
fullri vissu þess, að ég þurfi aldrei framar að nota þess-
háttar vandræða „húmbúgg11.
Svo langt sem minnið rekur liðin ár, er þetta fyrsta árið,
sem ég hefi ekki fundið til minnstu óþæginda í hálsi og
ekki fengið vott af þeim umgangspestum, sem húsgangar
eru í höfuðstaðnum, enda þótt ég hafi búið án allrar var-
kárni innan um sjúkt fólk.
Jafnhliða mataræðinu hefi ég nú notið um hundrað
heitra teppabaða ásamt nuddi hjá Jónasi lækni um tvö
tímabil, og þess á milli um sextíu gufu- og leirbaða í Hvera-
gerði. Árangurinn er sem að ofan greinir. Liðaverkirnir
fara þverrandi, í höndum og handleggjum eru þeir að mestu
horfnir. Þoli ég nú að gera ýmislegt í höndum tímum sam-
an, sem ég áður mátti ekki, án þess að óttast illar af-