Heilsuvernd - 01.04.1953, Síða 40
VIII
Aðalfundur
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélag íslands, verður
haldinn i fundarsalnum í húsi félagsins i Reykjavík, laugar-
daginn 6. júní 1953 og hefst klukkan 1,30 e. h.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfir-
standandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram
til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga til 31.
desember 1952 og efnahagsreiknihg með athugasemd-
um endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tiliögum
til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra,
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Ivosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og
eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa í skrifstofu félagsins i Reykjavík,
dagana 2.—4. júni næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir
umboð til þess að sækja fundinn í aðalskrifstofu fétagsins
i eykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri
umbocja séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skrá-
setningar, ef unnt er 10 dögum íyrir fundinn, þ. e. eigi
síðar en 20. maí 1953.
Reykjavík, 28. janúar 1953.
STJÓRNIN.
J