Heilsuvernd - 15.12.1958, Blaðsíða 7

Heilsuvernd - 15.12.1958, Blaðsíða 7
HEILSUVERND 99 á heilsufari frumstæðra þjóða. Samanburður á lifnaðar- háttum og heilsufari þjóða, sem búa við ólík skilyrði, væri að öllum líkindum stórt skref í þá átt að leysa ráðgátuna um eðli og orsakir margra algengustu sjúkdóma. En nú er svo komið, að tækifærin til slíkra rannsókna eru að ganga okkur úr greipum. Það er þó fullvíst, að margar frumstæðar þjóðir hafa búið við svo að segja fullkomna heilbrigði öldum saman. ítarleg rannsókn á mataræði þeirra og lifnaðarháttum væri ómetanleg hjálp til skilnings á sambandinu milli lifnaðarhátta og heilbrigði eða sjúk- dóma. Slíkar rannsóknir hafa að vísu verið gerðar. Má þar nefna hinar stórmerkilegu rannsóknir enska læknisins og vísindamannsins Sir Robert McCarrisons. Þó að nú muni orðið fátt um þjóðir, sem búa við fornar, frumstæðar lífsvenjur, var víða hægt að finna minni eða stærri hópa slíkra manna fyrir 20 til 30 árum. Og hér á eftir verður sagt frá amerískum vísindamanni, sem lagt hefir stóran skerf til rannsókna af þessu tagi. Hann mark- aði sér að vísu þrengra svið en McCarrison, skoðaði aðal- lega tennur í fólki, en hinsvegar gerðist hann víðförull, heimsótti margar fjarskyldar þjóðir, sem bjuggu við hin ólíkustu skilyrði, og gefur það rannsóknum hans ómetan- legt gildi. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að um allan hinn menntaða heim eru tannskemmdir ákaflega útbreiddur kvilli, sem hefir aukizt hröðum skrefum síðustu aldir og áratugi. Menn hafa löngum deilt um orsakir tannátu, og margir hafa ekki viljað fallast á þá kenningu, að mataræð- inu sé um að kenna, vegna þess að þjóðir, sem lifa á mjög mismunandi fæði, virðast fá þennan sjúkdóm jafnt. Fyrir tæpum 30 árum tók sig til bandarískur tannlækn- ir og vísindamaður og ákvað að leggja leið sína til af- skekktra landa eða landshluta í öllum álfum heims til þess að reyna að ganga úr skugga um, hvernig háttað væri sambandinu milli mataræðis og tannskemmda. Á árunum 1931—’35 fór hann ásamt konu sinni til f jölda slíkra staða,

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.