Heilsuvernd - 15.12.1958, Blaðsíða 30
122
HEILSUVERND
Um anglýsingar í Heilsuvernd
Einhverja rekur ef til vill minni til þess, að fyrir fáeinum
árum birtist hér í ritinu heilsíðuauglýsing um cola-drykk.
Vakti þessi auglýsing undrun margra. Mönnum kom það
kynlega fyrir sjónir, að á lesmálssíðum ritsins skyldi þessi
drykkur settur á svartan lista sem skaðleg neyzluvara,
einkum hættuleg börnum, en auglýstur á áberandi hátt
á næstu síðum. Meira að segja kom fyrirspurn út af þessu
frá erlendum skoðanabræðrum, sem virtust mjög hneyksl-
aðir yfir þessu athæfi.
Það kom upp úr kafinu, að sá er safnaði auglýsingum
í þetta sinn, hafði ekki fengið nein fyrirmæli frá ritstjórn-
inni um efni auglýsinga, svo að hér var um hreint óvilja-
verk ókunnugs manns að ræða. En í umræðum, sem út
af þessu spunnust, heyrðist þó rödd, sem hélt því fram, að
ekkert væri við það að athuga, að félagið reyndi að græða
fé á því að auglýsa vörur, sem skaðlegar eru heilsu manna.
Sem betur fer, virtist þetta sjónarmið eiga sér formæl-
endur fá.
Þetta er rifjað upp hér vegna þess, að atvik þessu líkt
kom fyrir hjá tímaritinu Hálsa, málgagni heilsuræktar-
félagsskaparins í Svíþjóð. I októberhefti þess birtist heil-
síðuauglýsing frá fyrirtæki, sem framleiðir sérstaka teg-
und af sykri, Klopfers-sykur, kennt við einhvern dr.
Klopfer, þýzkan vísindamann, og á að vera heilnæmur
náttúrusykur. 1 nóvemberheftinu skýrir ritstjórinn svo
frá, m. a. í tilefni af fyrirspurn, að vegna anna hafi hon-
um sézt yfir að kynna sér samsetningu þessa sykurs. En
nú upplýsir hann, að 90% þess sé venjulegur sykur, sem
svo er blandaður einhverjum öðrum efnum. Þessi sykur
getur því að vísu talizt minna óhollur en venjulegur hvít-
ur sykur eða púðursykur, en um ,,heilsusykur“, eins og
hann er kallaður í auglýsingunni, er ekki að ræða. Rit-