Heilsuvernd - 15.12.1958, Blaðsíða 13

Heilsuvernd - 15.12.1958, Blaðsíða 13
HEILSUVERND 105 jarðvegurinn hefir áður fengið tilbúinn áburð. Það tekur nokkur ár að umbreyta gróðurmoldinni, og til þess að fullur árangur komi í ijós, mega reitirnir heldur ekki vera of litlir, því að þá er hættara við, að áhrifa frá nærliggj- andi reitum gæti að einhverju leyti. Tilraunir Soil Association í Suffolk mun vera fyrsta rannsókn af þessu tagi, gerð í stórum mælikvarða og með fyllstu vísindalegri nákvæmni og aðbúnaði. En þrátt fyrir það sem að framan er sagt, geta smærri tilraunir á litlum reitum sýnt furðu mikinn árangur þeg- ar á fyrsta ári, og verður sagt frá innlendri reynslu annars- staðar hér í heftinu. 1 Heilsuvernd og öðrum ritum hefir þráfaldlega verið á það bent, að flest matvæli, sem við leggjum okkur til munns, svo sem mjólk, grænmeti, rótarávextir, aldin og kornmatur, eru framleidd með tilbúnum áburði. Nær- ingargildi þessara matvæla verður því minna en vera mundi, ef náttúrlegur lífrænn áburður væri notaður. Þar við bætist, að jurtir, sem vaxa upp af tilbúnum áburði, hafa svo litla mótstöðu gegn sýklum og sníkjudýrum, að nauðsynlegt er að verja þær gegn þessum sjúkdómsvöld- um, og er það gert með meira og minna eitruðum lyfjum, sem hljóta að menga fóðrið og matjurtirnar. Uppskeruna þarf svo iðulega að verja skemmdum með öðrum lyfjum, sem einnig eru meira og minna skaðleg. Þannig er það m. a. með ávexti, bæði nýja, þurrkaða og niðursoðna, mjölvöru o. fl. Með núverandi ræktunaraðferðum verður þannig ekki hjá því komizt að leggja sér til munns fæðu mengaða skaðlegum efnum, sem veikla líkamann á löng- um tíma og gera hann móttækilegan fyrir sjúkdóma. Úr þessari hættu drögum við eftir megni með því að velja þær fæðutegundir, sem við vitum að eru hollastar og nær- ingarríkastar, svo sem nýtt ósigtað mjöl, mjólkurmat og grænmeti, en forðast léleg matvæli eins og hvíta mjöl- vöru eða gamalt mjöl, sykur, skaðlega drykki o. s. frv. Með þessu er stórt skref stigið í þá átt að efla heilbrigðina

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.