Heilsuvernd - 15.12.1958, Side 9

Heilsuvernd - 15.12.1958, Side 9
HEILSUVERND 101 Það vakti sérstaka athygli höfundar, hve vel börnin þoldu kulda. Þegar hann varð að bretta upp frakkakrag- anum til að halda á sér hita, voru börnin að leikjum úti, berhöfðuð og jafnvel berfætt, vaðandi í jökulvatninu. Price skoðaði tennur fyrst og fremst í börnum á skóla- aldri, frá 7—16 ára. Hann fann að meðaltali eina skemmda tönn hjá 3. hverju barni, eða milli 1 og 2 skemmdar tenn- ur af hverjum hundrað. Hann skoðaði einnig tennur full- orðinna. Fyndi hann þar skemmda tönn, varð hann þess oftsinnis vísari, að skemmdin hafði komið við eins tii tveggja ára dvöl utan átthaganna ,en eftir heimkomuna hafði tekið fyrir frekari tannskemmdir. Höfundur rannsakaði fjörefni í mjólk dalbúa, og reynd- ust þau meiri en annarsstaðar í Sviss eða í Bandaríkj- unum. 1 öðrum afskekktum dal, Vispdal, fann höfundur skemmd í 2.3% þeirra tanna, er hann skoðaði. Mataræði var þar líkt og i Lötschendal. Húsmæður bökuðu rúgbrauð til eins mánaðar í einu, og hefir reynt mikið á tennur fólks að vinna á því. I Ayerþorpi við Rón fann höfundur einnig rúmlega 2% tanna með skemmdir, og matræði var líkt og að ofan er lýst. En í Vissoieþorpium klukkustundar gang frá Ayer, voru tannskemmdir orðnar um 20%, þ. e. 5. hver tönn skemmd. Skýringin var einföld: Þangað var kominn ak- vegur fyrir nokkrum árum, og íbúarnir fengu nóg af hveitibrauði, sykri og kökum. Enn verri var útkoman í fjallaþorpinu St. Moritz. Þar var nærfellt 3. hver tönn skemmd (30%), þrátt fyrir það að tennur barna voru vel hirtar og burstaðar reglulega. I hinum fyrrgreindu byggðarlögum var tannburstinn yfir- leitt óþekktur og börnin með þykkt lag matarleifa á tönn- um, sem eigi að síður voru óskemmdar. Þetta sýnir, að sú kenning fær ekki staðizt, að matarleifar í munni og á tönnum eigi sök á tannskemmdum. Börnin í St. Moritz, voru í náinni snertingu við menninguna, þar var nóg af

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.