Heilsuvernd - 15.12.1958, Side 11
HEILSUVERND
103
Lífrænar ræktunaraðferðir
Fyrir nokkrum árum birtust hér í ritinu allítarlegar
lýsingar á ræktunaraðferðum, sem fólgnar eru í því, að
notaður er eingöngu safnhaugaáburður í garða, á akra eða
tún. I safnhaugana er notaður húsdýraáburður, ef til er,
hálmur, moð, allskonar úrgangur innanhúss og utan, svo
sem kál, kartöflugras, einnig mold og jafnvel hey. Það
hitnar í haugnum fyrir starfsemi gerla, og sé rétt að farið,
verður hann á nokkrum vikum eða mánuðum að fínni, ilm-
andi mylsnu. Sumir leggja mikið upp úr því að setja ákveð-
in efni í hauginn til að örva efnabreytingar, en aðrir telja
það ekki skipta máli.
Þessar aðferðir þykja gefa betri raun en notkun tilbúins
áburðar, eða húsdýraáburður notaður á venjulegan hátt.
Áburðurinn nýtist til fulls, enginn úrgangur eða afrakstur
verður, og auk þess verður uppskeran öruggari. En aðal-
kosturinn við þessa aðferð er sá, að gróðurinn, sem upp
af honum vex, öðlast mikla mótstöðu gegn sjúkdómum.
Gildir það jafnt um sjúkdóma, sem stafa af veirum, bakter-
íum, möðkum eða öðrum sníkjudýrum, eða af efnaskorti.
Auk þess er talið, að jurtir, sem upp af þessum áburði
vaxa, hafi meira næringargildi en ella. I Heilsuvernd
hefir verið skýrt frá hinum stórmerku tilraunum Howards
í Indlandi, frá danska félagsskapnum, sem telur mörg
hundruð bændur og garðyrkjumenn og notar þessar að-
ferðir, frá útbreiðslu þeirra á Norðurlöndum og í Englandi
og frá félagsskapnum Soil Association í Englandi. Ættu
þeir sem vilja kynna sér þetta nánar, að afla sér eldri
hefta Heilsuverndar, því að í stuttu máli er ekki hægt að
rifja þær greinar upp, svo að gagn sé að. Hinsvegar verð-
ur reynt að láta lesendur Heilsuverndar fylgjast með því
markverðasta, sem gerist í þessum efnum.
Félagið Soil Association í Englandi fékk til umráða all-