Heilsuvernd - 01.12.1959, Síða 11
HEILSUVERND
103
Ebba Waerland:
Mesti
heilsuvoðiim. -
Geislunareitrun
(Niðurlag).
Kjarnorkuknúin skip sigla nú um úthöfin. Hvað verður,
ef slík skip stranda á skeri eða lenda í árekstri? Enn hefir
reynslan ekki svarað þeirri spurningu, en okkur rennir
grun í, hvert svarið muni verða. Þýzka tímaritið Constance,
sem áður er vitnað í, hefir það eftir norskum vísinda-
mönnum, að ef kjarnorkuknúður kafbátur skyldi farast,
mundi geislamagn andrúmsloftsins fara tíu sinnum yfir
hættumarkið. .
Margir vísindamenn og leikmenn, og stjórnmálamennirn-
ir fyrst og fremst, reyna að gera lítið úr þeirri hættu, sem
stafar af kjarnorkutilraunum og kjarnorkuverum, eða af-
neita henni með öllu. En hins vegar er fjöldi ábyrgra vís-
indamanna og leikmanna —og tala þeirra fer sihækkandi,
— sem beina eindregnum varnaðarorðum til ráðandi manna
og almennings og eiga ekki nógu sterk orð til að lýsa
áhyggjum sínum.
Prófessor Frederic Soddy, nóbelsverðlaunahafi í efna-
fræði, hefir sagt opinberlega: ,,Ef þið viljið heyra skoðun
mína á fyrirætlunum ensku ríkisstjórnarinnar um að reisa
fleiri kjarnorkustöðvar á næstu árum, þá lít ég á það
sem hreina vitfirringu“.