Heilsuvernd - 01.12.1959, Blaðsíða 34
126
HEILSUVERND
svo að ekki ætti að þurfa að vera um nein slys að ræða
á þeim leiðum, ef menn gera sér far um að kynnast kenn-
ingum stefnunnar nægilega nákvæmlega. —
Það er ekki kenning náttúrulækningastefnunnar, að
dýraætur geti ekki notið sæmilegrar heilsu, heldur hitt,
að æskilegast sé að lifa á jurtafæðu fyrir margra hluta
sakir, og að þar muni koma, að mannkynið allt hallist
á þá sveifina.
En sennilega þarf eina eða tvær kynslóðir til þess að
sanna til fulls ágæti stefnunnar, og ekki er alltaf mikils
að vænta, þó að flúið sé á náðir hennar eins og einhverr-
ar þrautalendingar, ef til vill eftir heilsuglöp hálfrar ævi.
— En betra er þó oft seint en aldrei. —
Grétar Fells.
OPNIÐ GLUGGA.
Hafið þér sofið við opinn glugga að vetrarlagi? Ef þér
hafið ekki gert það, er tímabært að byrja að venja sig
á það. Það eykur vellíðan og starfsorku.
Ef þér óttist ofkælingu, farið þér gætilega af stað. Hafið
gluggann eilítið opinn eða glugga í næsta herbergi og opn-
ar dyr á milli.
Góður svefn endurnýjar okkur. Og hreint loft í svefn-
herberginu er eitt höfuðskilyrðið fyrir djúpum, styrkj-
andi, endurnýjandi svefni. Þreyttur heili, þreyttar taugar,
þreyttur líkami þarfnast súrefnis.
Meðan við sofum hægir lífsstarfsemin á sér. Þetta á þó
ekki við um starf húðarinnar. Húðin eykur starf sitt, með-
an við sofum. En hún er eitt af mikilvægustu hreinsi-
tækjum líkamans. Gegnum 3 milljónir af svitaholum losar
líkaminn sig við úrgangs- og eiturefni. Það er því ekki
að furða, þótt okkur slái fyrir brjóst, er við komum inn