Heilsuvernd - 01.12.1959, Side 18
110
HEILSUVERNI>
lífi sínu í því skyni aS koma róti á hugi manna; þeir fóru
á litlum báti út á svæði, þar sem gera átti kjarnasprengju-
tilraun. En þeir voru teknir höndum og hnepptir í fangelsi,
og þar sitja þeir enn. Samt bar tiltæki þeirra árangur. Og
í hiniim víðtæku samtökum, sem ég vinn með, eru hundruð
manna, sem eru reiðubúnir til að leggja líf sitt í hættu í
því skyni að vinna að því að bægja frá meðbræðrum sínum
aðsteðjandi hættu.
Við, sem viljum efla fagurt og auðugt líf á jörðu hér og
láta eftirkomendum okkar í arf meiri heilbrigði en við
njótum sjálf, á okkur hvílir mikil ábyrgð, sem við megum
ekki bregðast. Það veltur á okkur öllum, þér og mér, hvort
unnt verður að bjarga jörðu okkar frá hinum illu örlögum,
sem yfir vofa.
ÓTRÚLEGT EN SATT.
Tannlæknir í Locarno í Sviss, Hipleh að nafni, segir
frá því í bréfi til stéttarbróður síns, að hann hafi nýlega
þurft að draga allar tennur úr þremur börnum tveggja
ára gömlum, vegna þess að þær voru orðnar skemmdar
og svartar. Hann gerði þetta í svæfingu. Börnin voru hætt
að geta tuggið vegna sársauka og hætt að þrífast.
Hann kveðst aldrei hafa séð neitt þessu líkt þau 30 ár,
sem hann hefir starfað sem tannlæknir. Áður sá hann
varla tannskemmdir hjá börnum yngri en 4 ára, og var
auðvelt að gera við þær. En síðustu árin hefir þeim börn-
um farið fjölgandi, sem koma þriggja ára gömul með
brunna jaxla, sem ekki er hægt að gera við, og með
skemmdir í framtönnum, en það var óvenjulegt áður. Hann
heldur því fram, að röng næring eigi mesta sök á þessu
ástandi, og einkum sá vítaverði ósiður að gefa börnum
sælgæti eða sykur á milli máltíða.
(Vie et Santé, maí 1959).