Heilsuvernd - 01.12.1959, Blaðsíða 20
112
HEILSUVERNÐ
sjúkrasamlagsstyrkréttinda sinna til veru á hælinu. Hefur
þetta létt mjög undir með slíkum sjúklingum og aukið
möguleika þeirra til að sækja hælið, sem þeir langflestir
hafa haft meira og minna gagn af.
Þá hefur Tryggingarstofnun ríkisins veitt viðbótarlán
til hælisins, þannig að nú er öll skuld hælisins þar, 450
þús. kr., sem greiða skal á 10 árum með jöfnum afborg-
unum. Hefur og verið veitt ríkisábyrgð fyrir láni þessu.
Er það góð hjálp.
Um fjárhaginn er þetta heizt að segja: Um síðustu ára-
mót var búið að verja til Heilsuhælisins, húss, húsgagna
og áhalda 3 millj. og 425 þús. kr. — Auk þess var keypt
íbúðarhús nr. 66 við Þelamörk í Hveragerði fyrir 335 þús.
kr. Var það gert vegna þrengsla í hælinu og aðallega notað
fyrir starfsfólk. — Strax hefur verið varið á þessu ári
(1959) 900 þús. kr. til kaupa á húsgögnum í nýju her-
bergja-álmuna í hælinu, sem er þó ekki alveg fullgerð;
eftir að dúkleggja og fullmála.
Hælið rúmar nú allt að 80 dvalargesti. Aðsókn þangað
er sívaxandi. Á árinu 1957 dvöldu þar 350 manns, 1958
um 550 og um miðjan okt. síðastliðinn höfðu þegar sótt
það 600 manns.
Útbreiðslustarfsemin hefur að mestu orðið að sitja á
hakanum þetta tímabil, en verður vonandi hægt að fara
að bæta eitthvað um. Töluvert hefur verið óskað eftir
matreiðslunámskeiðum, en ekki hægt að verða við þeim
af þvi að ekki hefur verið hægt að fá hæfa stúlku, —
að dómi stjórnarinnar — til að standa fyrir þeim, þar sem
fáar íslenzkar stúlkur eru vel menntaðar í matargerð að
leiðum náttúrulækningafólks.
Tímarit félagsins, Heilsuvernd, hefur nú um 1500 kaup-
endur, en auk þess er allmörgum sent það ókeypis, ýmist
í þakklætis- eða útbreiðsluskyni.
Félagsmenn í deildum N.L.F.l. eru nú um 15—16 hundr-
uð; talan ekki örugg vegna þess að skýrslur vantar frá
nokkrum deildum.