Heilsuvernd - 01.10.1963, Síða 4
B J 0RN L. J 0N SSON, lœknir:
Reykingar barna
í Reykjavik
Grein Jiessi birtist í nýútkomnu heiti ai HeilbrigSu líji og er lckin liér upp
með leyji ritstjóra.
Árið 1959 fór fram könnun á reykingavenjum nemenda í 10 ung-
linga- og gagnfræðaskólum í Reykjavík að tilhlutan borgarlæknis og
fræðslustjóra. Þáverandi aðstoðariæknir borgarlæknis, Haraldur
Guðjónsson, ritaði grein um könnun |iessa í Læknablaðið, 1. befti
1961, og voru niðurstöður bennar í stuttu máli sem hér segir:
Könnunin náði til 2731 nemanda, 1296 pilta og 1435 stúlkna, á
aldrinum 13 lil 17 ára. Af piltunum reyktu meira eða minna 37.8%,
frá 34.8% (13 ára ) upp í 54.8% (17 ára), en af stúlkunum 18.3% ,
frá 17.2%' (13 ára) upp í 19.5%- (17 ára). Síðasta talan er grun-
sandega lág, því að í 16 ára aldursflokki stúlkna reyktu 24.9% .
Daglega reyktu 2.7%» 13 ára pilta og 25.8% 17 ára, en 3.2% 13
ára stúlkna og 9.8% 17 ára.
Samanburður við hliðstæðar rannsóknir í nokkrum öðrum löntl-
um virlist benda til þess, að tala unglinga, sem reykja, sé svipuð i 4
Reykjavík og erlendis, en á hinn bóginn séu hér minni brögð að dag-
legum reykingum.
Varla er ástæða til að ætla, að unglingarnir bafi gert of mikið úr
reykingum sínum. Verður því að álykta, að af 13 ára unglingum séu
rúmlega 3. hver piltur og rúmlega 6. hver stúlka byrjuð að reykja.
Að fengnum þessum niðurstöðum þótti rétt að rannsaka, hvernig
ástatt væri í þessum efnum hjá börnum yngri en 13 ára.
1 samráði við fræðslustjóra og viðkomandi skólastjóra ákvað
borgarlæknir því að gangast fyrir svipaðri könnun í 10 til 12 ára
bekkjum í stærstu barnaskólum Reykjavíkur og í Mýrarhúsaskóla á ^
124 HEILSUVERND