Heilsuvernd - 01.10.1963, Blaðsíða 21
Nú segir lítið af ferðum okkar, þar til við komum að svonefndum
Þorvaldshálsi. Þar stóðu bílarnir oft alveg upp á endann, og kusu
margir að ganga; bæði var veðrið gott og heiðin heillaði, og einnig
var golt að létta á bílunum. Þorvaldsháls — ég vona að ég fari rétt
með nafnið — er sagður versti vegur á Islandi, sem bílum er þrælað
yfir. Nú fór okkur líka að skiljast, að það var ekki að ástæðulausu,
að nær ógerlegt var að fá bíla í þetta ferðalag. Bílstjórarnir okkar
voru ungir menn, áttu sjálfir bílana og höfðu byggt yfir þá. Þeir
voru mjög aðgætnir, duglegir og þolinmóðir, hvort sem yfir var að
fara hraunfláka eða ár, og heyrðist aldrei frá þeim æðruorð. Eg fór
að trúa á það, sem haft er eftir útlendingum, sem hér hafa ferðazt,
að íslenzkir langferðabílstjórar myndu vera með þeim beztu í heimi.
Eftir um það bil 11 klukkustunda ferðalag var ákveðið að halda
ekki lengra inn á heiðina, heldur tjalda við Ulfsvatn, sem líklega telst
til Tvídægru, en að vísu kalla flestir allt þetta svæði Arnarvatnsheiði.
Er menn höfðu tjaldað og fengið sér hressingu, fóru margir í
grasaleit, en þá tók að rigna, svo að lítið varð úr grasatínslu um
kvöldið.
Næsta morgun var farið snemma á fætur, því að veður var gott, og
pokarnir hafnir á loft. Grös voru sæmileg, þótt ekki væru þau eins
mikil og þeir bjartsýnustu höfðu gert sér vonir um. Þó held ég, að
allir hafi grasað sæmilega og sumir vel.
Upp úr hádegi fóru menn að týgja sig til heimferðar. Staðnæmzt
var við Surtshelli í bakaleiðinni. í grennd við Kalmanstungu var
hvílzt undir yndislegri skógivaxinni fjallshlíð á árbakka. Þar bauð
forstjóri Heilsuhælis NLFl öllum hópnum upp á ávaxtagraut og
mjólk og hin ágætu brauð frá heilsuhælinu. Var það með þökkum
þegið. Að loknu matarhléi var haldið áfrarn viðstöðulaust, þar til
komið var til Þingvalla. Þar var staðið við um hríð og síðan haldið
beint til Reykjavíkur. Okkur fannst öll ferðin heim ganga miklu
fljótar, eins og oft vill verða, erula hílstjórarnir kunnugri leiðinni og
gátu því farið hraðar. Heim var komið um miðnætti. Virtust allir
glaðir og ánægðir yfir vel heppnaðri ferð.
Anna MaUhíasdóttir.
H EILSUVERND
141