Heilsuvernd - 01.10.1963, Blaðsíða 11
stjórinn var tregur til að verða við beiðni Daníels og sagði: „Eg er
hræddur um, að minn herra konungurinn, sem tiltekið hefir mat
yðar og drykk, sjái yður fölari í bragði en aðra sveina á yðar aldri,
og verðið þér svo þess valdandi, að eg fyrirgjöri lífi mínu við kon-
unginn. Þá sagði Daníel við tilsjónarmanninn, er hirðstjórinn hafði
sett yfir þá Daníel. Gjör tilraun við oss þjóna þína í tíu daga, og
lát gefa oss kálmeti að eta og vatn að drekka. Skoða síðan yfirbragð
vort og yfirbragð sveina þeirra, er eta við konungsborð, og gjör því
næst við oss eftir því, sem þér þá lízt á oss. Og hann veitti þeim hón
þessa og gjörði tilraun við þá í tíu daga. Og að tíu dögum liðnum
reyndust þeir fegurri ásýndum og feitari á hold en allir sveinarnir,
sem átu við konungsborð. Og þessum fjórum sveinum gaf Guð kunn-
áttu og skilning á allskonar rit og vísindi. En Daníel kunni og skyn
á allskonar vitrunum og draumum. Og er liðinn var sá tími, er kon-
ungur hafði tiltekið, að þá skyldi leiða á sinn fund, þá leiddi hirð-
stjórinn þá fyrir Nebúkadnezar. Og konungur átti tal við þá, en eigi
fannst neinn af þeim öllum slíkur sem þeir Daníel. Og gengu þeir í
þjónustu konungs. Og í öllum hlutum, sem viturleik og skilning
þurfti við að hafa og konungur spurði þá um, reyndust þeir tíu sinn-
um fremri en allir spásagnarmenn og særingamenn í öllu ríki hans.“
Mesta kaffincyzluþjóðin
Islenzkt dagblað hefir nýlega skýrt svo frá, að íslendingar drekki
meira kaffi en nokkur önnur þjóð í heimi. Kaffineyzla þeirra nemur
12.4 kílógrömmum á ári á hvert mannsbarn í landinu eða rúmu kíló-
grammi á mánuði. Næstir koma Svíar með 12.2 kg, Danir með 10.7
kg, Finnar með 9.5 kg og Norðmenn með 9.4 kg.
Að meðaltali munu koma um 200 bollar af kaffi úr hverju kaffi-
kílógrammi. Dagleg neyzla nemur því að meðaltali um 7 bollum á
hvert mannsbarn í landinu eða um 14 bollum á hvern landsmann,
sem kaffi drekkur, sé gert ráð fyrir, að helmingur landsmanna drekki
ekki kaffi.
HEILSUVERND
131