Heilsuvernd - 01.10.1963, Blaðsíða 14
Hár blóðþrýstíngnr
og fösÉur
Hér fer á eftir yfirlit um árangur af meðferð sjúklinga með háan
blóðþrýsting, sem dvalið höfðu í heilsuhæli dr. Buchingers í Uber-
lingen í Þýzkalandi umliðin 4 ár. Sjúklingarnir voru 84 að tölu, 45
karlar og 39 konur, á aldrinum 30—75 ára. Var miðað við blóð-
þrýsting yfir 170 mm hjá hinum yngri og yfir 200 mm hjá hinum
eldri, þegar meðferðin í hælinu hófst.
Hár blóðþrýstingur er oft afleiðing af sérstökum sjúkdómum, svo
sem sjúkdómum í nýrum, hjarta, heila, skjaldkirtli og nýrnahettum.
Hjá 80—90% sjúklinga með háan blóðþrýsting er þó ekki vitað um
neina slíka sjúkdóma. í umræddri athugun var öllum þeim sjúkl-
ingum sleppt, sem ofangreindir sjúkdómar fundust hjá.
Af öllum sjúklingum í hælinu voru 80% of feitir, en meðal sjúkl-
inganna með háan blóðþrýsting var offita enn tíðari, eða um 90% .
Bendir það til þess, að offita sé ein af orsökum hins háa blóðþrýst-
ings.
Meðferð sjúklinganna var aðallega í því fólgin, að þeir voru látn-
ir fasta. Daginn áður en fastan hófst, fengu þeir ný aldin og voru
látnir taka inn glaubersalt í því skyni að koma af stað hægðum.
Meðan á föstunni stóð, var þeim sett stólpípa þrisvar í viku.
Föstudrykkirnir voru jurtate, grænmetisseyði, ferskur aldinsafi
og ölkelduvatn. Þá voru notuð böð, nudd, m. a. vatnsnudd, leikfim-
is- og öndunaræfingar, en venjuleg blóðþrýstingslyf voru alls ekki
gefin. Lengd föstunnar var 2 til 3 vikur.
Sjúklingarnir léttust að sjálfsögðu, meðan á föstunni stóð, ört
fyrstu dagana, síðan hægar, karlar örar en konur. En jafnframt lækk-
aði blóðþrýstingurinn, hjá flestum þegar frá upphafi föstunnar. Hjá
sumum sjúklingunum fór blóðþrýstingur þó ekki að lækka fyrr en á
134
HEILSUVERND