Heilsuvernd - 01.10.1963, Side 15
annarri eða þriðju viku föstunnar. Og yfirleitt var lækkunin meiri
hjá körlum en konum. Beztur varð árangurinn hjá lægri aldurs-
flokkunum og hjá þeim, sem feitastir voru við komuna í heilsuhælið.
Hjá þessum síðastnefndu lækkaði blóðþrýsiingurinn að meðaltali úr
185 mm í 125 mm (karlar) og úr 200 mm í 140 mm (konurl.
Eftir að föstunni lauk, þyngdusi sjúklingarnir aftur, konur örar
en karlar. Blóðþrýstingslækkunin hélzt tn'slengi, og fór það mjög eft-
ir lifnaðarháttum sjúklinganna, er heim kom, svo sem skiijanlegt er.
Hér á eftir verður lýst stuttlega árangri meðferðarinnar hjá flmm
sj úklingum.
1. Karlmaður, 59 ára, 101 kg, blóðþrýstingur 180/120 mm. Hafði
haft háan blóðþrýsting í 6 ár þrátt fyrir lyfjanotkun. Sterkur og ó-
reglulegur hjartsláttur. Fastaði í 14 daga, var þá 93 kg á þyngd og
blóðþrýstlngur 120/80. Hjartaeinkenni voru horfin, og hjartalínu-
rít sýndi, að starfsemi hjartans hafði batnað. Líkamlegt þrek hafði
aukizt.
2. Karlmaður, 55 ára, 96 kg, blóðþrýstingur 215/130 mm. Hafði
notað lyf í 2 ár vegna blóðrásarlruflana. Fastaði í 3 vikur. Þyngd þá
84 kg og blóðþrýstingur 140/95 mm.
3. Karlmaður, 66 ára, 71 kg, blóðþrýstingur 240/130 mm. Síðustu
5 ár mæði við áreynslu og oft þyngsli fyrir brjósti. Hafði verið undir
læknishendi síðustu 2 árin vegna hins háa blóðþrýstings. Fastaði í 14
daga. Þyngd þá 66 kg, blóðþrýstingur 160/90 mm.
4. Kona, 57 ára, 100 kg, blóðþrýstingur 210/120. Síðuslu 6 árin
undir læknishendi og alltaf notað blóðþrýstingslyf. Vaxandi mæði
við áreynslu, stundum einnig mæði í hvíld. Fastaði í 19 daga. Þyngd
þá 92 kg, blóðþrýstingur 140/80.
5. Karlmaður, 55 ára, 105 kg, blóðþrýstingur 170/110 mm. Að
undanförnu hafði hann þyngzt verulega og bióðþrýstingur farið
hækkandi. Farið var að bera á mæði og hjarísláttartruflunum. Far3t-
aði í 22 daga. Var þyngd þá 96 kg og blóðþrýstmgur 125/85 mm.
Hjá öllum þessum sjúklingum sýndu hjartalínurit. að ásland
hjaríans hafði tekið miklum breytingum til hins betra.
(Laiisleg þýðing á grein eftir (ir. med Ileins Fahrner
í þýzka iæknaritinu Hippokrates).
HEILSUVERND
135