Heilsuvernd - 01.08.1972, Síða 7

Heilsuvernd - 01.08.1972, Síða 7
í SV-Þýzkalandi, en það er bær með nokkur þúsund íbúa. Og árið 1963 hóf hann herferð mikla, sem lítillega er sagt frá í Heilsu- vernd, 1. hefti 1965, og verður nú lýst nánar og árangri hennar samkvæmt upplýsingum í sænska ritinu Hálsa og ensku riti gefnu út af félaginu ,,The Soil Association“. Til dr. Schnitzers var oft komið með þriggja og fjögra ára börn með gjöreyðilagðar tennur, og bersýnilega var það vonlaust verk að ráða bót á slíkum skemmdum í tannlæknastólnum. Hann ákvað því að grípa til róttækari aðgerða, stemma á að ósi. Hann byrjaði á því að ræða málin við bæjarstjórann, sem tók honum vel og var fullur skilnings og samstarfsvilja og bauðst til að láta bæjarblaðinu, sem borið var í hvert hús, fylgja aukablað með upplýsingum frá tannlækninum varðandi tannheilsu. Þá settu þeir sig í samband við alla bakara bæjarins og kvöddu þá til fundar í ráðhúsinu. Þar var þeim boðið upp á nýbakað heilhveitibrauð, sem bóndakona í nágrenninu hafði bakað. Hún hafði alizt upp með þrettán systkinum, faðir hennar malaði kom í lítilli kvörn, og á heimilinu var ekki annað brauð en heimabakað brauð úr nýju mjöli, enda voru börnin með öllu laus við tannskemmdir. Hálfum mánuði síðar voru allir bakararnir farnir að baka heil- hveitibrauð í tilraunaskyni, og vinsældir þess jukust smámsaman. Að því stuðluðu mjög fylgiblöð dr. Schnitzers, sem send voru út með bæjarblaðinu einu sinni eða tvisvar í mánuði með upplýsing- um um þýðingu næringarinnar fyrir tennur, og fyrir heilsufar í hvívetna. Og hverju heimili var send mappa sem fylgiblöðunum skyldi safnað í, svo að þau geymdust og yrðu lesin aftur og aftur og af nýju heimilisfólki. En dr. Schnitzer og bæjarstjórinn létu ekki þar við sitja. Þeir fengu kaupmenn, kennara og marga fleiri aðila í lið með sér. Kaupmennirnir gengust inn á það, að bjóða börnum aldrei sæl- gæti, þegar þau væru send í búðir til innkaupa eða kæmu þangað annarra erinda, heldur gefa þeim hnetur og aðra holla ávexti og halda slíku góðgæti að þeim börnum, sem ætluðu að kaupa venju- legt sælgæti fyrir aura, sem þeim höfðu áskotnazt. Kennarar tóku liðsbóninni einnig vel og héldu uppi fræðslu um tann- og heilsuvernd í skólunum. HEILSUVERND 103

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.