Heilsuvernd - 01.08.1972, Page 10

Heilsuvernd - 01.08.1972, Page 10
Um vöntunarsjúkdóma Frá fyrstu tímum hefir maðurinn skynjaS, af meðfæddri eðlis- hvöt, að í daglegri fæðu hans þarf nokkra fjölbreytni, ef komast á hjá sjúkdómum. Hugtakið efna- eða næringarskortur þekktist að vísu ekki fyrr en seint og síðarmeir, en menn gerðu sér eigi að síður snemma nokkra grein fyrir sambandinu milli fæðunnar og sjúkdóma, og eftirtekt og reynsla bentu á leiðir til að haga matar- vali eftir árstíðum og staðháttum á þá lund, að heilsunni væn sem bezt borgið. Þó hefir þetta sumstaðar ekki tekizt. Þjóðflokkar, sem búa í frumskógum við Amasónfljót í Suður-Ameríku, þjást t. d. af efnaskorti. Þeir lifa nær einvörðungu á jurtafæðu, sem þarna er mjög fábreytt. Þeir verða uppþembdir af mikilli neyzlu grænmetis, sem vantar ýmis mikilsverð næringarefni, þar á meðal eggja- hvítuefni og fitu. Til að bæta sér það upp, borða þeir stundum skorkvikindi, því að venjuleg veiðidýr eru þarna af skornum skammti vegna þess hve fábreytt fóður landið hefir upp á að bjóða. Lítum við svo til Eskimóa, búa þeir við ofgnótt eggjahvítu og fitu, en fá hinsvegar of lítiö af kolvetnum. í fæði þeirra vill auk þess verða skortur á sumum fjörefnum og steinefnum. 1 raun- inni lifa engin dýr á hreinni dýrafæðu, því að rándýrin éta inni- hald maga og þarma úr bráð sinni sem yfirleitt eru grasætur, og sama gera Eskimóarnir.*) *) Eitt mesta hnossgæti Eskimóa er magi veiðidýra með hálfmeltu innihaldi. — Ritstj. 106 HEILSUVERN O

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.