Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 19

Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 19
NIELS BUSK GARÐYRKJUSTJÓRI Söfnun tejupta Nú er kominn rétti tíminn til að safna drykkjarjurtum. Sam- kvæmt fornum uppskriftum á að blanda saman sjö tegundum til að fá góðan drykk, og náttúra íslands hefir upp á yfrið nóga fjölbreytni að bjóða í þessu efni, svo að engin vandkvæði eru á að afla sér vetrarforða í ljúffengan heilsudrykk. Hafa skal í huga, að blóm tekin döggvot gefa meiri ilm en ef þau hafa þornað í sólskini, og mikið er undir því komið að varðveita blómaanganina í sem ríkustum mæli. Fyrstu blómin, sem hægt er að safna, eru silfurmura og ljóns- löpp og síðan koma gullmura, rjúpnalauf, vallhumall, blóðberg, smári og loks mynturnar. Svo er það smekksatriði, hvernig þessum jurtum er blandað saman. Um það er ekki hægt að gefa neinar ákveðnar reglur, hve mikið eða lítið eigi að hafa í hverri blöndu. En þess má geta, að mjaðjurt og blóðberg eru kraftmiklar jurtir, sem nota skal í hófi. Jurtirnar eru þurrkaðar sem fyrst, en ekkí í sólskini, og svo eru þær geymdar í þéttum umbúðum, t.d. plast- pokum, og notaðar til drykkjar daglega í staðinn fyrir kaffi eða venjulegt te. Kálmaðkurinn Ef kálflugan er farin að sækja á blómkál eða rófur, þá er að grípa hlandforarfötuna og hella yfir moldina, og þetta er um leið hinn bezti áburður. Lirfurnar leggja þegar á flótta undan hlandforinni, svo framt að þær hafi ekki þegar hreiðrað um sig HEILSUVERND 115

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.