19. júní - 19.06.2018, Page 4
2 | 19. júní 2018
24. nóvember 2017 verður minnst
sem eins af merkustu dögum kvenna-
baráttunnar á Íslandi. Þann dag birtust
fyrstu #MeToo-sögurnar, þær voru frá
konum í stjórnmálum. Síðan þá hafa
hóparnir komið fram einn af öðrum
og birt kröfur og frásagnir kvenna
af ofbeldi. Samfélagið verður aldrei
eins eftir þessa afhjúpun kúgunar og
þöggunar.
Yfirlýsingar allra #MeToo-hópa
sem stigu fram eru birtar hér í blaðinu.
Í þeim eru settar fram kröfur um að
við sem samfélag tökum meiri ábyrgð í
baráttunni gegn kynferðisofbeldi, hvort
sem það er hið opinbera, vinnustaðir,
stéttarfélög, fagfélög eða almenningur.
Þúsundir kvenna hafa lagt nafn sitt
við þessar yfirlýsingar. Það er ekki einfalt
eða auðvelt fyrir allar þessar konur að
skrifa undir kröfurnar, að taka þátt í
aðgerðinni. Sumar stofna frama sínum
í hættu, aðrar öryggi barna sinna og
það er okkar allra að tryggja að ákallið
fái hljómgrunn. Að undirskrift hverrar
og einnar verði til þess að samfélagið
breytist og þróist í átt frá kynferðislegu
ofbeldi.
Af #MeToo-sögunum höfum við
lært enn betur að konur á Íslandi verða
fyrir ofbeldi þegar þær eru börn, ungl-
ingar og fullorðnar. Þegar þær eru í
vinnu, heima hjá sér, í heimsókn hjá
frændfólki, úti að labba eða í partýi með
vinum. Á landi, í lofti eða á sjó.
Nei, snúum þessu við.
Ofbeldismenn á Íslandi beita
ofbeldi hvar sem er, hvenær sem er,
óháð aldri brotaþola, stöðu eða stétt.
Í #MeToo-sögunum má greina ýmis
mynstur í þeim aðferðum og tækni
sem ofbeldismenn nota. Til að mynda
hvernig þeir króa konur af, brjóta
maka sína niður, sniðganga hugmyndir
samstarfskvenna á fundum, hóta
konum, misnota dætur sínar eða áreita
samstarfskonur. Þó að þeir hafi aldrei
hist, jafnvel ekki verið uppi á sama tíma,
þá nota þeir gjarnan sömu orð.
Það hefur aldrei verið ljósara
hversu mikilvægt er að breyta námskrám
allra skólastiga og leggja áherslu á að
kenna öllum kynjum að virða mörk. Við
þurfum að kenna mikilvægi samþykkis,
að það sé nauðsynlegt að spyrja og virða
svör hinnar manneskjunnar, við þurfum
Fríða Rós Valdimarsdóttir
Frá formanni