19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 22
20 | 19. júní 2018
tala um stjórnmál á íslensku og yfirstíga
feimni eða aðrar hindranir sem þær
höfðu glímt við. Við kynntum okkur
pólitíska þátttöku utan hefðbundins
flokksstarfs, t.d. félagastarf, hvernig
maður stofnar félagasamtök eða vinnur
með lýðræðislega þátttökuvettvanga
eins og Betri Reykjavík eða Betri hverfi.
Fulltrúar allra flokka á Alþingi
mættu svo á námskeiðið með það fyrir
sjónum að skýra fyrir konunum hvernig
flokks starfið fer fram og hvetja þær til
þátttöku.
Skemmtilegast fannst mér að
hvorki flokksfulltrúar né þátttakendur
einblíndu á innflytjendamálin í kynn-
ingu sinni heldur fjölluðu frekar um
þá málaflokka sem eru öllum íbúum
landsins mikilvægir, svo sem húsnæðis-,
heilsu- og menntamál. Stundum sátum
við lengi eftir og ræddum málin, svo
mikill var áhuginn.
Í kjölfar Alþingiskosninga 28.
október 2017 voru úrslit kosninganna
meðal annars rædd og farið í hópavinnu
þar sem þátttakendur fengu umboð til
stjórnarmyndunar, veltu fyrir sér öllum
möguleikum og kusu svo hver sína
uppáhaldsríkisstjórn.
Hápunktur námskeiðsins var
svo eflaust heimsókn á Alþingi í boði
full trúa Vinstri grænna 6. nóvember
2017 en loforðið sem ég hafði gefið
þátttakendum í byrjun námskeiðsins
um að koma þeim á þing rættist þar
fyrr en ég hefði getað ímyndað mér.
Ítarlega var fjallað um heimsóknina og
nám skeiðið í grein með stórri mynd á
baksíðu Morgunblaðsins sem margar
geyma eflaust stoltar. Sama kvöld tók
hóp urinn á móti konum af erlendum
uppruna sem höfðu tekið virkan þátt í
stjórnmálum, á mismunandi forsendum
þó. Meðal þeirra sem mættu til leiks
voru Tatjana Latinovic formaður Inn-
flytj endaráðs og varaformaður Kven-
rétt indafélags Íslands, Amal Tamimi
fyrr verandi varaþingmaður, Johanna
van Schalkwyk fyrrverandi bæjarfulltrúi
í Grindavík og Barbara Kristvinsson sem
er virk í venjulegu flokksstarfi hjá Sam-
fylkingunni.
Á
rs
þ
in
g
W
o
m
en
P
o
lit
ic
al
L
ea
d
er
s
í H
ö
rp
u
2
01
7.
M
yn
d
: W
PL