19. júní - 19.06.2018, Page 28
26 | 19. júní 2018
tíma í Samkomuhúsinu á Akureyri og á
Seyðisfirði.
Þrátt fyrir að jólaundirbúningurinn
væri í algleymi gerðu fjölmiðlar þessum
viðburði góð skil og sýnt var beint frá
honum á ruv.is og visir.is.
Það má raunar segja að
fjölmiðlar á Íslandi hafi verið mjög
vakandi fyrir #MeToo og fjallað um
það sem fram fór á metnaðarfullan
hátt. Margir hópar stigu fyrst fram í
fréttaskýringaþættinum Kastljósi á RÚV
en aðrir fjölmiðlar gerðu einstökum
viðmælendum góð skil og leituðu
einnig viðbragða yfirvalda í þeim
geirum sem frásagnirnar snertu. Og
þau viðbrögð voru að langmestu leyti
forundran og óhugnaður auk loforða
um að bæta starfsumhverfi kvenna og
skera upp herör gegn kynferðislegri og
kynbundinni áreitni og ofbeldi.
Misjafnt var þó hversu hart stéttir
gengu fram í því að gangast við ábyrgð.
Tveir kennarar í leiklistardeild LHÍ stigu til
hliðar eftir að frásagnir um kennsluhætti
þeirra voru gerðar opinberar og tveimur
leikurum í Reykjavík var einnig vikið frá
störfum eftir að í ljós kom að fleiri en
ein saga kvenna úr þeirra starfsgrein
fjallaði um þá. Þá sagði leikhússtjóri
Leik félags Akureyrar einnig upp störf-
um eftir að ljóst var að hann hafði
gerst sekur um alvarlegt kynferðisbrot.
Í öðrum greinum voru viðbrögðin ekki
eins afgerandi þótt formenn flestra
stéttar- og hagsmunafélaga hafi verið
sammála um að #MeToo-frásagnirnar
lýstu ástandi sem væri ólíðandi.
Þegar kom að því að kjósa mann
ársins 2017, eins og tíðkast milli jóla og
nýárs ár hvert, kom ekki á óvart að hver
fjölmiðillinn á fætur öðrum tilnefndi
#MeToo-hreyfinguna og svo fór að
hún var kjörin maður ársins á Stöð tvö
og konurnar sem tóku þátt í #MeToo-
byltingunni voru kjörnar manneskjur
ársins af hlustendum Rásar tvö.
Á verðlaunahátíð Eddunnar 25.
febrúar 2018 var upphafsatriðið til-
einkað #MeToo-byltingunni þar sem
þrjátíu konur á öllum aldri stigu á svið,
að sænskri fyrirmynd, og fluttu áhrifa-
mikið ávarp og eiðstafi um breytingar.
Aðgerðir stjórnvalda í kjölfar
#MeToo-byltingarinnar á Íslandi hafa
enn ekki verið afgerandi en miklum
vilja hefur verið lýst til breytinga og
margir starfshópar stofnaðir hjá ýmsum
ráðuneytum og opinberum stofnunum.
Þá hefur fjöldi málþinga og ráðstefna
verið haldinn til að greina og skýra
fyrirbærið, spá fyrir um framhaldið og
blása konum áframhaldandi baráttu-
anda í brjóst. Of langt mál er að greina
frá þeim öllum en þó má nefna þjóð-
fund sem Kvenréttindafélag Íslands stóð
fyrir 10. apríl ásamt ASÍ, BSRB, BHM og
Kennara sam bandinu undir yfirskriftinni
„Samtal við #MeToo konur – Hvað
getum við gert?“ Niðurstaðan var ákall
um aukna ábyrgð og skýra verkferla