19. júní - 19.06.2018, Qupperneq 35
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 33
Kynferðisofbeldi, áreitni og
kynbundin mismunun á sér stað í
hugbúnaðar- og tæknigeiranum, rétt
eins og annars staðar í samfélaginu.
Óþarfi er að taka fram að ekki
gerast allir karlar sekir um áreitni eða
mismunun – hins vegar verða allt of
margar konur fyrir því á starfsferli sínum
og það er algerlega óásættanlegt.
Kynbundin mismunun birtist með ýmsum
hætti; allt frá niðurlægjandi athuga-
semdum um útlit eða getu samstarfs -
kvenna og óviðeigandi brandara yfir í
kynferðislega áreitni. Það er ólíðandi
að ekki sé tekið á umkvörtunum ef sá
sem áreitir er metinn „of verðmætur“.
Þeir sem gera öðrum óbærilegt að
sinna sínu starfi, eru ekki og geta aldrei
verið, verðmætari en starfsandinn og
fyrirtækið. Slíkt verð mætamat og vinnu-
brögð þarf að uppræta.
Við krefjumst þess að allir
samverkamenn okkar taki ábyrgð á að
uppræta vandamálið; að viðeigandi
yfirvöld, stéttarfélög og fyrirtæki í
hug búnaðar-, vef- og tækniiðnaði
taki af festu á málinu og komi sér
upp verkferlum og viðbragðsáætlun
gegn kynbundinni áreitni. Kynbundið
ofbeldi, áreitni og mismunun á ekki
að líðast, hvorki á vinnustöðum né
annars staðar í samfélaginu. Látum
meðfylgjandi frásagnir tæknikvenna af
kynferðisáreitni og kynbundnu áreiti og
mismunun í tækni-, upplýsinga- og hug-
búnaðar iðnaði vera þær síðustu.
Við förum fram á fræðslu
fyrir starfsfólk á birtingarmyndum
kynferðislegrar áreitni og kynbundinnar
mismununar og hvernig fyrirtækið
muni taka á slíku ef upp kemur. Við
árétt um mikilvægi þess að fyrirtæki
og starfsfólk taki umræðuna og setji
sér saman siðareglur, líkt og tíðkast í
erlend um stórfyrirtækjum, í fjölmiðlum
og stjórnmálum, þar sem grunngildi
í rekstri og samskiptum eru áréttuð,
undir rituð og yfirfarin reglulega.
Við eigum ekki að þurfa að þegja
lengur eða leiða ástandið hjá okkur.
Við verðskuldum jafnrétti, að
okkur sé trúað og sýndur stuðningur.
Fyrst og fremst á misréttinu að linna. Við
krefjumst þess að fá að vinna vinnuna
okkar án áreitni, ofbeldis eða mis-
mununar. Við stöndum saman og höfum
hátt. #MeToo
Konur í tækni-
upplýsinga- og
hugbúnaðariðnaði