19. júní


19. júní - 19.06.2018, Síða 46

19. júní - 19.06.2018, Síða 46
44 | 19. júní 2018 Til forystu samtaka launafólks. Að undanförnu hafa konur í verkalýðshreyfingunni rætt saman í lokuðum hópi og sagt frá kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir í vinnunni og félagsstörfum innan hreyfingarinnar. Umræðan hófst í kjölfar og í ljósi #MeToo-byltingarinnar en fjöldi kvenna hefur um allan heim stigið fram og rætt slík brot gegn sér á vinnustað. Í hópnum eru konur sem starfa eða hafa starfað innan þeirra heildarsamtaka sem eru viðtakendur þessa bréfs. Um helmingur félagsmanna ASÍ eru konur en innan BHM, BSRB og KÍ er hlutfall kvenna á bilinu 70–81% eftir því sem næst verður komist. Þrátt fyrir þetta hallar almennt verulega á hlut kvenna í valdastöðum innan aðildarfélaga og hjá samtökunum sjálfum. Flestar kenningar á sviði kynjafræði segja að kynferðisleg áreitni snúist um vald, valdaleysi og ójafnvægi. Það hefur löngum verið vitað að fjöldi einstaklinga sem verður fyrir slíkri áreitni er mun meiri en þeir örfáu sem leita til stéttarfélaganna. Hvers vegna ætti staðan að vera öðruvísi innan samtaka launafólks? Getur það verið að kjarni vandans sé einmitt sá að tryggja þurfi að öllu starfsfólki innan verka- lýðshreyfingarinnar líði vel og út rýma þurfi menningu sem byggir á valda- ójafnvægi. Það þarf að bæta stöðu kvenna innan verkalýðshreyfingarinnar líkt og í öðrum starfsgreinum og sviðum samfélagsins. Hingað til hefur fylgt því mikil skömm að vera þolandi áreitni eða ofbeldis enda almennt ekki talið konum til tekna að hafa verið þolendur í slíkum málum. Þessi bylting er af sama toga og barátta gegn heimilisofbeldi, Druslu- gangan, umræðan á Beauty tips um kynferðislega áreitni og #höfumhátt. Það er jafn nauðsynlegt bæði innan verkalýðshreyfingarinnar og utan, að brugðist sé við vitundavakningunni og skapað verði andrúmsloft þar sem þolendur treysta sér til þess að segja frá. Þannig þarf að liggja skýrt fyrir m.a. hvaða ferli eru í gangi samkvæmt reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynbundinni áreitni, kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Enn fremur að þolendur viti hvert þeir eiga að leita ef slíkt kemur upp. Meðal gagnrýnisradda á þessa byltingu eru á þann veg að konur séu að gera of mikið úr þessu. Vandamál þess hugarfars er auðvitað fólgið í því að það er ekki áhorfandans að meta heldur þolandans. Þá gleymist einnig sú staðreynd að staða kvenna er önnur en karla, á vinnumarkaði og í samfélaginu. Þannig eru dæmi um að konur séu ítrekað áreittar sem veldur því að þær upplifa þá hvert atvik sterkara fyrir vikið þar sem þeirra reynsla er sú að þetta sé ítrekað, þó að gerendur séu margir og byggt á ólíkum tengslum. Áhrifaþættir á jafnrétti á vinnu- markaði og þar með laun eru nokkrir en það sem m.a. hefur áhrif eru kyn- skipt ur vinnumarkaður, völd og áhrif. Konur í verkalýðshreyfingunni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.