19. júní - 19.06.2018, Qupperneq 49
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 47
#jöfnumleikinn
Undanfarnar vikur hafa þúsundir
íslenskra kvenna stigið fram og sagt frá
kynferðislegri áreitni og ofbeldi sem
þær hafa orðið fyrir. Um er að ræða
hverja starfsgreinina á fætur annarri,
þar sem kynbundið ofbeldi og misrétti
er við lýði og hefur viðgengist óáreitt.
Andlegt ofbeldi, kynferðisleg
áreitni, kynferðislegt ofbeldi og líkam-
legt ofbeldi gegn konum á sér einnig
stað í íþróttum.
Meðfylgjandi eru 62 frásagnir
kvenna úr heimi íþróttanna af kyn bund-
inni mismunun, kynferðislegri áreitni og
kynferðislegu ofbeldi.
Ljóst er að kynbundið ofbeldi,
áreitni og mismunun er vandamál í
hinum karllæga íþróttaheimi Íslands líkt
og á öðrum stöðum í samfélaginu. Eins
og sjá má í frásögnum sem við birtum
hér, er vandann að finna í framkomu
þjálfara, stjórnarmanna, nuddara og
sjúkraþjálfara, dómara, sjálfboðaliða,
fjölmiðla, sem og hjá öðrum iðkendum.
Mikið valdamisræmi er á milli
iðkenda annarsvegar og þjálfara og
annarra sem starfa í kringum íþróttina
hinsvegar. Vandamálið er sérstaklega
viðkvæmt þar sem stór hluti iðkenda eru
börn og unglingar. Hvers konar ofbeldi
og áreitni grefur undan sjálfstrausti,
sjálfsvirðingu og vellíðan og fyllir þann
sem fyrir því verður af skömm, sjálfs-
ásökunum og ótta sem svo hefur áhrif
á árangur.
Stúlkur og konur eiga skilið að fá
að iðka íþrótt sína í öruggu umhverfi og
vera lausar við kynbundið misrétti og
kynferðislega áreitni af öllum toga.
Við setjum því niður fótinn og
biðjum um leikhlé.
Við sættum okkur ekki við mis-
munun, ofbeldi eða áreitni og köllum
eftir breytingum.
Við krefjumst þess að málið sé
tekið föstum tökum, að öll íþróttafélög,
sérsambönd, þjálfarar og aðrir innan
íþróttanna, líti í eigin barm og lofi stúlk-
um og konum breytingum til frambúðar.
Við krefjumst þess að umhverfi
íþróttanna breytist, að konum sé gert
kleift að segja frá ofbeldi án þess að
það komi niður á framtíðarmöguleikum
þeirra innan íþróttarinnar, að á þær
sé hlustað, að með þeim sé staðið og
að þeim sé trúað. Síðast en ekki síst
krefjumst við þess að geta stundað
íþróttir án þess að verða fyrir ofbeldi
eða áreitni.
#jöfnumleikinn
Því miður eru fordæmi fyrir því
að konur sem staðið hafa á rétti sínum
og hafa látið vita af ofbeldi sem þær
hafa verið beittar, fá á sig orð fyrir að
vera erfiðar í samstarfi með tilheyrandi
útskúfun og óréttlæti, ef þá á annað
borð sé tekið mark á orðum þeirra.
Gerendur sem hafa verið reknir á einum
stað eru einfaldlega ráðnir annars
staðar. Að sama skapi eru dæmi um það
að félög hafi ekkert gert í málunum
þrátt fyrir að um brot geranda hafi verið
upplýst.
Konur í íþróttum