19. júní


19. júní - 19.06.2018, Page 62

19. júní - 19.06.2018, Page 62
60 | 19. júní 2018 og karlastörf. Þeir eiga að leggja ríka áherslu á að jafna hlut kynjanna í stjórnunar- og áhrifastöðum og setja sér jafnréttisáætlun ef starfsmenn eru 25 eða fleiri. Þar á að fjalla um markmið og setja fram áætlun um hvernig eigi að ná þeim til að tryggja starfsmönnum réttindi samkvæmt öllu því sem nefnt hefur verið hér að framan og fjallað er um í jafnréttislögum. Í lögunum segir einnig að atvinnurekendur og yfirmenn stofnana og félagasamtaka skuli gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og skjólstæðingar verði fyrir kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað, stofnun, í félagsstarfi eða skólum. RÁÐNINgARVeRND Margir óttast afleiðingarnar af því að stíga fram og kvarta undan misrétti eða áreitni. Því er vert að benda á að í jafnréttislögum er fjallað um tiltekna ráðningarvernd þeirra sem hafa lagt fram kvörtun á grundvelli laganna. Samkvæmt þeim á atvinnurekandi að gæta þess að starfsmaður verði ekki beittur óréttlæti í starfi, s.s. með tilliti til starfsöryggis, starfskjara eða mats á árangri, auk þess sem atvinnurekanda er óheimilt að segja starfsmanni upp sökum þess að hann hafi krafist leiðréttingar á grundvelli laganna. Verndin gildir í eitt ár frá því að kvörtun var lögð fram. Þegar þessi grein er rituð er til umfjöllunar fyrir Alþingi að innleiða löggjöf um jafna meðferð á vinnumarkaði óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kyneinkennum eða kyntjáningu. Verði frumvarpið (loksins!) að lögum munu gilda sambærilegar reglur og nefndar hafa verið hér að framan um bann við mismunun og ráðningarvernd á grundvelli fleiri ástæðna en eingöngu kyns í almennum lögum. öryggi á vinnustað Meginmarkmið #MeToo-bylting- arinn ar er að áreitni og annað ofbeldi heyri sögunni til en það hafa lengi hvílt ríkar skyldur á atvinnurekendum til fyrirbyggjandi aðgerða gegn áreitni og ofbeldi á vinnustað samkvæmt áðurnefndri reglugerð. Í fyrsta lagi á starfsfólk rétt á því að komið sé fram við það af virðingu á vinnustaðnum. Það á rétt á vernd gegn kynbundinni og kynferðislegri áreitni og öðru ofbeldi á vinnustað af hálfu yfirmanna, samstarfsmanna og einstaklinga sem starfsfólk þarf að eiga í samskiptum við vegna vinnu sinnar (utanaðkomandi aðila, s.s. skjólstæðinga eða viðskiptavina). Til að svo megi verða eiga atvinnu rekendur samkvæmt reglu- gerðinni að: 1. Meta áhættu á því að starfsfólk verði fyrir áreitni eða ofbeldi á vinnu staðnum (mælt er með því að áhættu matið sé gert í samstarfi við starfsfólkið). 2. Auka skilning starfsfólks á og vitund um að slík hegðun sé óheimil. 3. Gera skriflega áætlun um forvarnir og viðbrögð við áreitni eða ofbeldi þar sem fram kemur hvert starfsfólk eigi að leita (mælt er með því að allt starfsfólk sé frætt sérstaklega um áætlunina og hvar megi nálgast hana). 4. Stöðva slíka hegðun og grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir að hún endurtaki sig. 5. Grípa til aðgerða ef atvinnu rekandi verður var við hegðun eða ágreining í samskiptum starfsmanna sem líkur eru á að leitt geti til slíkrar áreitni eða ofbeldis verði ekki gripið til aðgerða.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.