19. júní


19. júní - 19.06.2018, Page 64

19. júní - 19.06.2018, Page 64
62 | 19. júní 2018 Hvar getur fólk leitað stuðnings? Fjölmargar stofnanir og aðilar geta veitt ráðgjöf og stuðning, bæði í tengsl- um við fyrirbyggjandi aðgerðir sem og ef starfsfólk hefur orðið fyrir áreitni eða öðru ofbeldi á vinnustað. Þar má nefna stéttarfélag viðkomandi, Jafn réttisstofu, Vinnueftirlitið og Bjarkar hlíð – miðstöð þolenda ofbeldis. eFTIRFyLgNI MÁLA gAgNVART ATVINNUReKANDA Algengast er að leitast sé við að leysa mál innan vinnustaðarins. Gangi það ekki eftir eru nokkrar aðrar leiðir færar. Jafnréttisstofa og stéttarfélög geta stutt einstakling með því að fylgja málum eftir fyrir kærunefnd jafnréttismála en hún hefur það hlutverk að kveða upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði jafnréttislaga hafi verið brotin. Niðurstaða kærunefndarinnar er bindandi sem þýðir að atvinnurekandi verður annaðhvort að hlíta úrskurði nefndarinnar og bregðast við í samræmi við hann eða að leggja málið fyrir dómstóla til úrlausnar innan tiltekins tímafrests. Stéttarfélög gætu jafnframt að loknu mati á aðstæðum ákveðið að styðja einstaklinginn í að leggja mál fyrir dómstóla og það sama gildir ef aðstæður eru metnar svo að brotið hafi verið í bága við áðurnefnda reglugerð. Þessar leiðir fela í sér að málið beinist gegn atvinnurekanda en ekki meintum geranda. Rétt er að benda á að Vinnueftirlitið úrskurðar ekki um hvort tiltekin hegðun teljist vera áreitni eða ofbeldi en fylgir því eftir að unnið sé í samræmi við reglugerðina á vinnustaðnum. eFTIRFyLgNI MÁLA gAgNVART MeINTUM geRANDA Jafnframt má kæra kynferðislega áreitni, ofbeldi og blygðunarsemisbrot (hegðun sem er til þess fallin að særa blygðunarsemi manna, t.d. gægjur eða berháttun) til lögreglu og þá beinist málið gegn meintum geranda. Þetta eru brot sem varða við almenn hegningarlög og geta varðað fangelsisdómi. Ljóst er af skilgreiningu hegningarlaga um kynferðislega áreitni að lögin taka til alvarlegri tilvika en fjallað er um í jafnréttislögum og reglugerðinni en þar segir að hún felist m.a. í því að strjúka, þukla eða káfa á kynfærum eða brjóstum annars manns innan klæða sem utan og táknrænni hegðun eða orðbragði sem er meiðandi, ítrekað eða til þess fallið að vekja ótta. Hjá Bjarkarhlíð geta einstaklingar sem hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða öðru ofbeldi fengið ráðgjöf og upplýsingar. Þar er veitt samhæfð þjónusta mismunandi stofnana og samtaka í hlýlegu og öruggu umhverfi. Hvernig breytum við menningunni? Algengasta ástæða þess að fólk stígur ekki fram í kjölfar áreitni er að það telur að því verði ekki trúað, að ekki verði hlustað á það og ekki brugðist við með viðeigandi hætti. Já- kvæð vinnustaðamenning, góð stjórnun og samskipti við næsta stjórn anda geta haft mikil áhrif á það hvort fólk treysti sér almennt til að stíga fram og verið besta forvörnin gegn því að áreitni eða ofbeldi eigi sér stað. Það er enginn vafi á því að hvers kyns samskipti eða hegðun á vinnustað sem lætur einstaklingi líða illa er þess virði að upplýst sé um slíkt. Við eyðum stórum hluta dagsins á vinnustaðnum og aðstæður þar eiga aldrei að vera með þeim hætti að þær hafi neikvæð áhrif á okkur. Áreitni og ofbeldi eru aldrei vandamál þolandans heldur vinnustaðarins.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.