19. júní - 19.06.2018, Síða 70
68 | 19. júní 2018
að þekkja aðstæður sínar, en eiga því
hins vegar að venjast að það þyki ekkert
merkilegt eða áhugavert og stundum
sé hreinlega óviðeigandi að draga þær
fram. Medina fjallar um mikilvægi
samstöðuhreyfinga til að fella það sem
hann kallar þekkingarveldi (e. epistemic
regimes) og eins talar hann um að andóf
sé nauðsynlegt lýðræðinu.
#MeToo-átakið sem hófst fyrir
nokkrum mánuðum og sem ég vona
að sjái ekki fyrir endann á er gott
dæmi um notkun samstöðu til að and-
æfa þekkingarlegu ranglæti. Í kjöl-
far yfirlýsinga einstaklinga í stöðu-
uppfærslum á samfélagsmiðlum fóru
ýmsir faghópar og aðrir hagsmunahópar
kvenna að taka sig saman og senda
út yfirlýsingar. Þessar yfirlýsingar
hafa myndað þrýsting um aðgerðir,
í einhverjum tilvikum í þá veru að
ákveðnum mönnum hefur verið vikið
úr starfi, en þau skilaboð sem eru
mikilvægust eru krafan um að þessi mál
séu tekin alvarlega og að það sé hlustað.
Þar skiptir fjöldinn og samstaðan
gríðarlega miklu máli.
Ein manneskja sem upplifir að hún
sé lítilsvirt og smánuð og ekki sé tekið
mark á henni er ekki í aðstöðu til að
sýna andóf einsömul og hjálparlaust.
Hún getur vissulega reynt en líkur
standa einmitt til þess að ekkert sé á
hana hlustað. Mun erfiðara er að hunsa
skilaboð og kröfur frá stórum fjölda.
Auk þess upplifum við í fjöldanum
stuðninginn hver frá annarri sem er
mikilvægari en flest annað og nokkuð
sem konur hafa fundið sterkt fyrir á
undanförnum mánuðum. Það verður
engin samstaða út á við án samstöðu
innan frá. Það er þar sem konur finna
fyrst að hlustað sé á frásagnir þeirra, tekið
mark á þeim, að fleiri hafi líkar sögur
að segja og hlutir séu settir í samhengi.
Hinu viðtekna túlkunarsamhengi, þar
sem yfirgangur karla gagnvart konum
telst ekki vera áreitni eða ofbeldi, er
andæft og búið er til rými þar sem
konur njóta fullrar virðingar, fullt mark
er tekið á frásögnum þeirra og gengið
er út frá að þekking þeirra sé mikilvæg
og áhugaverð. Hins vegar er mikil
vinna fram undan. Það þarf að fella
þekkingarveldið og byggja upp annað í
staðinn.
Heimildir
• Fricker, Miranda. Epistemic Injustice:
Power and the Ethics of Knowing.
Oxford: Oxford University Press, 2007.
• Medina, José. The Epistemology of
Resistance: Gender and Racial Oppression,
Epistemic Injustice, and Resistant
Imaginations. Oxford: Oxford University
Press, 2013.
• Spivak, Gayatri Chakravorty. Can the
Subaltern Speak? Basingstoke: Macmillan,
1988.