19. júní


19. júní - 19.06.2018, Page 73

19. júní - 19.06.2018, Page 73
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 71 Síðastliðinn pálmasunnudag var gjörningurinn Aqua María fluttur í sam- komusal Neskirkju undir handleiðslu Gjörningaklúbbsins. Um var að ræða innsetningu, flutning á kórverki, hugvekju og þátttökugjörning. Svona samsett verk eru ekki óalgeng þegar Gjörningaklúbburinn er annars vegar. Flest verk hans eru fjölþætt og þverfagleg og mætti helst líkja við örleikrit sem eru undir áhrifum töfraraunsæis en hafa jafnframt beitta samtímalega skírskotun. Gjörninga- klúbburinn hefur verið starfræktur frá árinu 1996 og hafa þær Eirún og Jóní myndað kjarna hans frá upphafi ásamt Sigrúnu Hrólfsdóttur en hún hefur þó verið í leyfi frá klúbbnum frá árinu 2016. Ég heimsótti þær Eirúnu og Jóní á vinnustofu þeirra við Reykjavíkurhöfn. Með sjóinn í bakgarðinum og rjúkandi hveravatn í bollunum hófum við að ræða um vinnuferla Gjörningaklúbbsins, tilurð Aqua María, vanahugsun og straumhvörf hugmynda í nútíð og fortíð á öld vatnsberans. Hvað varð til þess að þið völduð gjörningaformið upphaflega? Jóní: „Við byrjuðum þegar við vorum allar á lokaárinu í Myndlista- og handíðaskóla Íslands ‘96. Þá gerðum við okkar fyrsta gjörning saman, ég, Eirún og Sigrún. Ástæðan fyrir því að við fórum í gjörningaelementið var margþætt. Það var bæði að aðrir nemendur voru að gera gjörninga og okkur fannst það áhugavert. Svo vorum við líka beðnar um að taka þátt í gjörningum eftir aðra listamenn þannig að það má segja að við höfum smitast af bakteríunni. Svo fannst okkur þetta listform spennandi og pínulítið hættulegt.“ Eirún: „Já, hættulegt og líka svolítið vandræðalegt. Það er oft svo gott ef það er eitthvað sem maður er með fordóma fyrir að prófa að gera það sjálfur. Okkur fannst þetta líka spennandi, að vera á staðnum, vera alveg í beinu sambandi við áhorfandann. Ekki bara koma og hengja eitthvað upp á vegg heldur vera í þessu og finna viðbrögðin strax. Oft erum við að gera einhverja hluti eða verk sem er hægt að gera eitthvað við.“ Jóní: „Það er einhver gjörningur í þeim. Við gerum skúlptúr sem hægt er að fara í og getur verið á mörgum stöðum eða talar einhvern veginn. Ekki bara, eins og þú segir, að hengja eitthvað upp á vegg heldur er það líka nothæft. Það er performatíft element í verkunum.“ Nú eruð þið einungis konur í klúbbnum og hafið alltaf verið. Þið hafið unnið mikið með fólki úr ólíkum áttum en þið virðist halda þessum kjarna. Hefur aldrei neitt annað komið til greina? Jóní: „Það er svolítið krúttlegt að við erum ekki bara konur heldur erum við líka allar elstar í syskinahópnum okkar og erum allar búnar að missa brot úr framtönn.“ Eirún flissar. Jóní: „Eins og Björgvin Halldórsson.“ Þær hlæja báðar. Jóní: „En þetta er í rauninni ótrúlegt. Og kannski er það eitthvað við það að vera elst sem fer líka inn í samstarfið og er hluti af því af hverju við erum búnar að vinna svona lengi saman. Kannski erum við eins og systur eða systkinahópur?“ Eirún tekur við og útskýrir hvernig samstarfið hafi breyst eftir að Sigrún fór í starfsleyfi: „Við erum miklu meðvitaðri um að fá annað fólk inn í samstarfið. Við leggjum til þræðina en fáum fólk inn í meira skapandi starf með okkur fyrr í ferlinu í staðinn fyrir að biðja einhvern um að gera eitthvað ákveðið síðar. Þannig að kannski með því að verða tvær urðum við miklu fleiri.“ Jóní: „Maður reynir að skipta hlut unum svolítið upp, það gerir vinn- una skemmti legri. Maður græðir líka svo mikið á því, það er lærdómur að vinna með öðrum, fá þannig innsýn inn í hvernig annað fólk vinn ur og bara samtal um hluti.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.