19. júní - 19.06.2018, Qupperneq 76
74 | 19. júní 2018
Það er líka alltaf talað um „waves’“
á ensku, „feminist waves“.
Eirún: „Já bylgjur, fyrsta, önnur,
þriðja bylgja og hvað svo sem maður
vill kalla þessa bylgju. Jóní: Aqua María
bylgjuna.“ Eirún: „Allar þessar bylgjur,
straumar og stefnur. Þetta með vatnið
er svo skýrt, af því að vatnið er ekki
alltaf stillt og slétt, það er líka rosalega
kröftugt. Þess vegna vildum við í upphafi
gjörningsins gefa öllum einn dropa í
lófann og biðja þau að passa hann, af
því að dropinn holar steininn. Vatnið er
svo sterkt, það getur frosið, drepið fólk
og mótað.“
Þegar áhorfendur gengu inn í
Neskirkju urðu þeir strax þátttakendur í
gjörningnum. Jóní og Eirún tóku á móti
hverjum og einum í anddyrinu og spurðu
hvort þær mættu setja dropa í annan
lófann. Í kjölfarið bentu þær gestum á
að passa dropann vel og voru þeir svo
leiddir inn í salinn. Að predikuninni
og kórsöngnum loknum báðu þær
áhorfendur að stíga fram ef þeir þekktu
manneskju sem héti María. Smám saman
myndaðist röð af fólki og með dropann í
lófanum lagði það hendurnar á klakann
og þvoði skömmina burt í sameiningu.
Jóní: „Þessi stóri klaki sem við vorum
með var kannski í rauninni metafóra
fyrir steininn. Með því að koma saman
með dropana vorum við í rauninni að
hola steininn.“
Aqua María samanstendur af
kórverkinu, klakanum, Maríuspjallinu
og síðan myndunum. Getið þið sagt mér
aðeins frá myndunum?
Eirún: „Á síðustu mánuðum hérna
á vinnustofunni erum við búnar að
vera með sérstaka pissu-aðstöðu bak
við þessi tjöld.“ Þær flissa. Eirún heldur
áfram: „Þar erum við búnar að vera með
rosa flottan 300 g vatnslitapappír, arkir
sem við erum búnar að vera að pissa
á. Svo hengdum við nokkrar af þessum
örkum upp. Þessi verk heita Pissed Off!“
Jóní: „Við dúndruðum þeim upp.“
Eirún: „Með rosa nöglum þarna bara
beint í vegginn.“ Jóní: „Þetta er svona
mjúkt pönk. Konan í okkur er að pissa
á þennan „delicate“ vatnslitapappír.“
Eirún: „Og hefðina.“
Við snúum talinu að kvennakórnum
Hrynjandi en meðlimir hans voru allir
með nokkurs konar slæðuderhúfur með
áfastri perlu. Eirún: „Þegar Hrynjandi
var búin að syngja fóru þær allar í svona
pissistöðu og losuðu perlur úr klofinu á
sér. Sem dúndruðust svo niður. Ég veit
að mörgum fannst það alveg rosalega
falleg stund.“ Jóní: „Hljóðið í perlunum
og sjá þær svona skoppa út um allt.“
Við víkjum talinu aftur að slæðu-
derhúfunum en þær Jóní og Eirún
segja að þar hafi þær blandað saman
ýmsum menningartáknum auk þess sem
þær hafi verið vísun í derhúfu Trumps
með áletruninni „Make America Great
Again“ en þær tengja hana vestrænni
M
yn
d
: A
q
u
a
M
ar
ía