19. júní


19. júní - 19.06.2018, Page 85

19. júní - 19.06.2018, Page 85
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 83 Í upphafi þessa árs hélt leshringur Kvenréttindafélagsins upp á 25 ára starfsafmæli sitt. Snemma í janúar 1993 var samþykkt í stjórn félagsins að stofna til leshrings meðal félagskvenna með áherslu á að lesa kvennabókmenntir. Ragnhildur Vigfúsdóttir, sem þá sat í stjórn félagsins fyrir hönd Kvennalistans, var valin til að veita hópnum forystu. Hún boðaði til fyrsta fundar leshringsins á skrifstofu félagsins 29. janúar 1993, sem telst því stofndagur þessa lífseiga félagsskapar. Á fundinn mætti ein félagskona auk Ragnhildar sjálfrar. Það var Björg Einarsdóttir sem enn starfar með hópnum af fullum krafti, komin á tíræðisaldur. Mjór er mikils vísir og þótt fáliðað væri á fyrsta fundinum fjölgaði fljótt í hópnum. Þegar í byrjun stóð hann einnig opinn konum utan félagsins og komu þær úr ýmsum áttum, úr bókmenntanámi við Háskóla Íslands og víða að úr atvinnulífinu með margs konar bakgrunn og menntun. Eins og konurnar úr Kvenréttindafélaginu voru þær á ýmsum aldri og þannig skapaðist strax í upphafi fjölbreytileiki sem hefur auðgað og mótað starf leshringsins æ síðan. Félagatalið hefur að sjálfsögðu breyst á þessum langa tíma. Um tuttugu konur voru skráðar í hópinn þegar mest var þótt aldrei kæmu svo margar á fund samtímis. Nú eru 17 konur skráðar í leshringinn og hefur meirihluti þeirra verið með í starfinu í tvo áratugi eða lengur. Kjarni tíu til tólf þessara kvenna sækir flesta fundi og viðburði á snærum hópsins. Tengslin við upprunann í Kvenréttindafélaginu hafa vissulega dofnað með tímanum en aldrei rofnað að fullu. Þegar í upphafi voru lagðar línur um hvaða lesefni skyldi vera á dagskrá leshringsins, þ.e.a.s. kvennabókmenntir í rúmum skilningi. Bækur eftir konur og um konur hafa alla tíð verið í aðal- hlutverki, mest íslenskar skáld sögur en einnig hafa þýdd verk erlendra kven- rithöfunda frá ýmsum tímum verið lesin. Auk skáldverkanna hefur hóp- urinn tekið fyrir annars konar ritverk kvenna, t.d. leikrit, ljóð og fræðirit um sögu kvenna og listsköpun. Þegar ástæða hefur þótt til hafa rit eftir karla einnig fengið að fljóta með, einkum bækur þar sem líf eða staða kvenna er í brennidepli. Hugtakið kvennabókmenntir hefur því fengið annað og rýmra inntak hjá leshringnum en almennt er viðtekið. Fundir og fyrirkomulag Starfið í leshringnum hefur verið með svipuðu sniði alla tíð. Fundir eru haldnir einu sinni í mánuði frá september og fram á vor og fara þeir yfirleitt fram að loknum vinnudegi á einhverju góðu veitingahúsi í borginni eða jafnvel í nágrannabæjum. Í desember hafa fundir þó oftast verið haldnir á heimili einhverrar í hópnum og þar hafa konur iðulega lagt til frumsamið efni eða efni að eigin vali sem tengist jólum. Í byrjun starfsárs er lagt á ráðin um lesefni fram að áramótum en þegar komið er saman á nýju ári segir hver og ein frá nýútgefnum bókum sem hún las um jólin. Oft vaknar þá áhugi á að taka einhverja þeirra bóka fyrir á vormisserinu en að öðru leyti er lesefni skipulagt fram í maí. Venjulega lýkur starfsárinu síðan með skemmtiferð út fyrir borgina í sumarbyrjun. Lengi framan af voru fundirnir haldnir á sama stað, á loftinu á Lækjarbrekku, en einnig lagði hópurinn undir sig sparistofu á veitingastaðnum Caruso til fundahaldsins um nokkurra ára skeið. Nú ríkir meiri nýjungagirni í vali fundarstaða. Oft hefur ein úr hópnum tekið að sér að hafa stutta framsögu um verkið sem er á dagskrá og höfund þess og leiða síðan umræður.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.