19. júní


19. júní - 19.06.2018, Side 93

19. júní - 19.06.2018, Side 93
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 91 ég er drusla Ritstjórar Gréta Þorkelsdóttir, Hjalti Vigfússon og Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir. Salka, 2017. Fyrsta druslugangan, mótmæla- ganga gegn kynferðislegu ofbeldi og drusluskömmun, fór fram í Reykjavík 2011 og hefur nú öðlast fastan sess í íslensku samfélagi en þúsundir taka þátt í göngunni á hverju ári. Nú hafa aðstandendur druslugöngunnar gefið út bók með ýmiss konar efni sem henni tengist. Ég er drusla er gjörningabók, baráttubók, ljóðabók, bóklistaverk, greinasafn, ljósmyndabók, manífestó – margar bækur í einni. Í bókinni eru birt ljóð, listaverk – ýmist grafík, orðlistaverk eða ljósmyndir – yfirlýsingar, ræður sem hafa verið haldnar í druslugöngum hér á landi, hugleiðingar og slagorð, reynslusögur kvenna af ofbeldi og baráttugreinar ungra aktívista. Umfram allt er Ég er drusla femínísk bók sem vekur okkur til umhugsunar og minnir á að þrátt fyrir að við höfum náð langt í baráttunni síðustu áratugina eigum við enn óralangt í land til að ná fullu jafnrétti hér á Íslandi. Brynhildur Heiðar­ og Ómarsdóttir Frábærlega framúrskarandi konur sem breyttu heiminum Kate Pankhurst. Íslensk þýðing: Herdís M. Hubner. Bókafélagið, 2017. Frábærlega framúrskarandi konur sem breyttu heiminum eftir Kate Pankhurst, breskan rithöfund og teiknara, er barnabók ætluð börnum á aldrinum 5–8 ára og segir frá konum sem hafa breytt heiminum. Bókin er afar skemmtileg aflestrar en undirrituð las hana með aðstoð sex ára frænku sinnar sem lifði sig inn í frásagnirnar af þessum hugsjónakonum. Hver opna segir frá ævi einnar konu og eru sögurnar fagurlega myndskreyttar og skrifaðar á máli sem höfðar til barna. Sumar konurnar sem birtast í bókinni eru kunnuglegar, eins og Jane Austen, Frida Kahlo, Marie Curie, Amelia Earhart, Coco Chanel, Rosa Parks og Anna Frank, en aðrar eru minna þekktar, líkt og Gertrude Ederle (synti yfir Ermarsundið), Mary Anning (steingervingafræðingur), Mary Seacole (hjúkrunarfræðingur í Krím stríðinu), Sacagawea (land könn - uður) og Fifi (njósnari í seinni heims- styrjöldinni). Íslenskir lesendur geta svo notið frásagnar af ævi Bríetar Bjarnhéðinsdóttur en saga hennar kemur í stað ævisögu Emmeline Pankhurst sem birtist í breskri frumútgáfu bókarinnar. Brynhildur Heiðar­ og Ómarsdóttir Konur í heimspeki nýaldar Elísabet af Bæheimi, Damaris Cudworth Masham og Mary Astell. Íslensk þýðing: Þóra Björg Sigurðardóttir. Hið íslenska bókmenntafélag, 2017. Konur í heimspeki nýaldar birtir bréfaskipti og brot úr verkum þriggja heimspekinga á 17. og 18. öld, Elísabetar af Bæheimi (1618– 1680), Damaris Cudworth Masham (1659–1708) og Mary Astell (1660– 1731). Mikill fengur er að þessu litla riti. Þóra Björg Sigurðardóttir þýðir verkin og ritar inngang að safninu og bendir þar á að þrátt fyrir að konur hafi verið virkar í heimspekilegri umræðu á nýöld, skrifað bréf, bækur og tekið þátt í samræðum, þá sé þeirra sjaldan minnst í verkum (karlkyns) heimspekinga og sagnfræðinga. Kallar Þóra Björg söguritun þar sem konur eru útilokaðar „frumspekilega man- ætu“, þ.e. söguritun sem „étur upp“ hugmyndir og heimspeki kvenna.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.