19. júní - 19.06.2018, Síða 94
92 | 19. júní 2018
Í bókinni eru birt bréfaskipti Elísa-
betar af Bæheimi við franska heim-
spek inginn René Descartes og Damaris
Cudworth Masham við þýska heim spek-
inginn Gottfried Wilhelm Leibniz sem og
kafli úr bókinni Einlæg bón til háttvísra
kvenna eftir Mary Astell. Astell er mögu-
lega þekktust þeirra þriggja, ekki síst
fyrir hugmyndir sínar um kvenréttindi
og menntun kvenna en hún hefur verið
kölluð fyrsti enski femínistinn. Þóra Björg
þýðir kafla sem ber heitið „Um þroska
skiln ingsgáfunnar“ en þar hvetur Astell
kon ur til að bæta þekkingu sína og beita
rök hugsun og öðlast þar með skilning á
sjálfum sér og á umhverfinu, bæði hinu
efnislega og hinu andlega.
Brynhildur Heiðar og Ómarsdóttir
Kvöldsögur fyrir
uppreisnargjarnar stelpur:
100 magnaðar konur
Elena Favilli og Francesca Cavallo. Íslensk
þýðing: Magnea J. Matthíasdóttir. Mál
og menning, 2017.
100 sögur af 100 hugrökkum stelpum
sem létu drauma sína rætast. Hér er sagt
frá stelpum sem vildu verða geimfarar,
fá Nóbelsverðlaun í vísindum, skrifa
skemmtilegar bækur, berjast fyrir velferð
dýra og margt fleira. Við fræðumst um
Ameliu Earhart, Michelle Obama, Astrid
Lindgren, Malölu og 96 aðrar klárar
konur. Bókin er fallega myndskreytt
og skemmtilega þýdd af Magneu J.
Matthíasdóttur.
Gunnur Vilborg Guðjónsdóttir
Saga þernunnar
Margaret Atwood. Íslensk þýðing:
Birgitta Elín Hassell. Björt, 2017.
Saga þernunnar eftir Margaret Atwood
er sígilt femínískt skáldverk sem kom
fyrst út árið 1985. Skáldsagan gerist í
kristilegu bókstafstrúarríki, Gilead, þar
sem hvítir karlmenn ráða lögum og
lofum og konur eru valdalausar. Gilead,
sem er byggt á rústum Bandaríkjanna,
er tilgáta um hvað gæti gerst ef
kristnir bókstafstrúarmenn, sem hafa
nú þegar mikil ítök þar í landi, settust
við stjórnvölinn og endurskipulegðu
samfélagið í samræmi við túlkun sína
á Biblíunni. Skáldsagan kom fyrst út í
þýðingu Áslaugar Ragnars árið 1987 en
er nú komin út í nýrri þýðingu Birgittu
Elínar Hassell.
Skáldsagan hefur öðlast nýja
samfélagslega skírskotun eftir kjör
Donalds Trump í embætti Bandaríkja-
forseta 2016 en margir hafa séð vísi
að framtíðarsýn Atwood þegar þeir
greina stefnu nýju ríkisstjórnarinnar
vestanhafs. Sorglegt er að hugsa til þess
að ekkert í Sögu þernunnar sé skáldað
en Atwood hefur bent á að allri kúgun
og ofbeldi sem lýst er í skáldsögunni hafi
verið beitt einhvers staðar í heiminum á
einhverjum tímapunkti.
Brynhildur Heiðar og Ómarsdóttir
Við ættum öll að vera
femínistar
Chimamanda Ngozi Adichie. Íslensk
þýð ing: Ingunn Ásdísardóttir. Benedikt
bókaútgáfa, 2017.
Við ættum öll að vera femínistar er
læsileg lítil bók í lipurri þýðingu Ingunnar
Ásdísardóttur.
Kvenréttindafélagið gaf öllum
fyrsta árs nemum framhaldsskólanna
bókina, í von um að hún kæmi bæði
kenn urum og nemendum að gagni í
umræðunni um femínisma og jafn réttis-
mál.
Höfundur kemur meðal annars inn
á hvernig orðið „femínisti“ hefur lengi
haft fremur neikvæða merkingu og segir