19. júní - 19.06.2018, Side 106
104 | 19. júní 2018
FAgRÁÐSTeFNA UM STAFRÆNT
OFBeLDI
18. september hélt Kvenréttindafélag
Íslands fagráðstefnu um stafrænt ofbeldi á
Hallveigarstöðum og var tilefni hennar að á árinu
lauk félagið við rannsókn um stafrænt ofbeldi og
leit kvenna að réttlæti í kjölfar þess. Ráðstefnan
var hugsuð sem vettvangur fyrir fólk sem vinnur
að málum sem tengjast stafrænu ofbeldi og
fólk sem hefur sérþekkingu á málefninu til að
koma saman og ræða málin og voru 26 skráðir
þátttakendur. Fyrir hádegi var litið á stöðuna
og eftir hádegi var reynt að líta til framtíðar, til
hvaða ráða við gætum gripið til að berjast gegn
þessari vá.
Til máls tóku María Rún Bjarnadóttir
lögfræðingur sem ræddi um lagarammann
og stafrænt ofbeldi, Ásta Jóhannsdóttir sem
kynnti rannsókn Kvenréttindafélags Íslands á
leit þolenda stafræns ofbeldis að réttlæti, Hildur
Friðriksdóttir sem kynnti rannsókn á umfangi
stafræns ofbeldis á Íslandi, Júlía Birgisdóttir
sem sagði reynslusögu þolanda, Brynhildur
Björnsdóttir sem kynnti nýja stuttmynd um
stafrænt ofbeldi sem ætluð var unglingum og
Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn
og Hulda Elsa Björgvinsdóttir yfirmaður
ákærusviðs og staðgengill lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu sem sögðu frá hvernig
lögreglan tekur á kærum á stafrænu ofbeldi.
Ráðstefnan var tekin upp svo efni hennar gæti
verið aðgengilegt þeim sem ekki komust á
fundinn.
SAgA Og FRAMTÍÐ ÍSLeNSKU
STJóRNARSKRÁRINNAR
20. október var haldinn fundur um
sögu og framtíð íslensku stjórnarskrárinnar á
listahátíðinni Cycle í Gerðasafni. Á fundinum
voru kynnt mismunandi sjónarhorn á sögu og
þróun stjórnarskrár Íslands og tengsl hennar
við sjálfstæðis- og mannréttindabaráttu
á Íslandi. Erindi fluttu Njörður Sigurðsson
sviðsstjóri upplýsinga- og skjalasviðs
Þjóðskjalasafns Íslands, Ragnheiður
Kristjánsdóttir dósent í sagnfræði við Háskóla
Íslands og Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttar lögmaður og fyrrverandi formaður
stjórnar Mannréttindaskrifstofu Íslands. Í
lok fundar voru pallborðsumræður um sögu
og framtíð stjórnarskrárinnar. Þátttakendur
voru Andri Snær Magnason rithöfundur og
umhverfis verndarsinni, Brynhildur Heiðar- og
Ómarsdóttir framkvæmda stýra Kvenréttinda-
félags Íslands, Hörður Torfason tónlistarmaður
og aðgerðasinni, Andrés Ingi Jónsson
þingmaður Vinstrihreyfingar – græns framboðs,
Birgitta Jónsdóttir skáld, alþingis maður og
þingflokksformaður Pírata og Heiða Björg
Hilmisdóttir varaformaður Samfylkingarinnar.
Fundi stýrði Sara S. Öldudóttir og var fundurinn
skipulagður af Libiu Castro og Ólafi Ólafssyni
í tengslum við listaverkið Stjórnarskrá er ferli.
NORRÆN RÁÐSTeFNA UM
JAFNLAUNASTAÐALINN
Og ÁRANgUR ÍSLANDS Í
JAFNRéTTISMÁLUM
10. október hélt Dagný Ósk
Aradóttir Pind stjórnarkona í Kven-
réttindafélaginu erindi á ráðstefnu sem
skipulögð var af þýsku Friedrich-Ebert
stofnuninni og kvennahreyfingu sænska
Sósíaldemókrataflokksins. Var ráðstefnan
haldin í Stokkhólmi. Í pallborði með Dagnýju
sátu Rósa Guðrún Erlingsdóttir sérfræðingur
hjá velferðarráðuneytinu og Harpa Ólafsdóttir
sérfræðingur hjá Eflingu. Friedrich-Ebert
stofnunin er þýsk félagasamtök sem stofnuð
voru 1925 og hafa það að markmiði að treysta
lýðræðislegar undirstöður samfélagsins.
Innan stofnunarinnar er sérstök deild sem
rannsakar norræna velferðarsamfélagið og
rekur stofnunin skrifstofu í Stokkhólmi.
KVöLDSTUND MeÐ FeÐRAVeLDINU
18. október tók Brynhildur Heiðar- og
Ómarsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttinda-
félagsins þátt í pallborðsumræðum á Kex
Hostel skipulögðum af Jafnréttisdögum HÍ.
Með henni ræddu málin Alda Villiljós formaður
Trans Íslands, Gyða Margrét Pétursdóttir dósent
í kynjafræði við Háskóla Íslands, Hjálmar G.
Sigmarsson kynjafræðingur, aðgerðasinni og
ráðgjafi hjá Stígamótum og Svandís Anna
Sigurðardóttir kynja- og hinseginfræðingur
og verkefnastjóri Mannréttindaskrifstofu