19. júní


19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 107

19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 107
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 105 Reykjavíkur. Umræðum stýrði Arnar Gíslason kynjafræðingur og jafnréttisfulltrúi HÍ. Viðburðurinn var skipulagður af starfshópi um jafnréttisdaga í HÍ. Á KVeNNASLóÐUM 24. október leiddi Birna Þórðardóttir sögugöngu um Vesturbæinn, Kvosina og Þingholtin þar sem hún sagði frá konum sem hafa markað spor í sögu borgarinnar. Að lokinni göngu var boðið upp á kaffi og kökur á Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum og Lay Low og Agnes spiluðu og sungu lög við ljóð eftir íslenskar konur. Að fundinum stóðu Bandalag kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands og var hann haldinn í tilefni af því að 50 ár voru liðin frá því að Kvennaheimilið Hallveigarstaðir opnaði dyr sínar. BReAK THe SILeNce! KOSNINgARéTTUR, KVeNNAFRÍ Og #MeTOO Kvenréttindafélag Íslands var einn af samstarfsaðilum alþjóðasamtakanna WPL, Women Political Leaders, sem hélt ársþing sitt í Hörpu dagana 28.–30. nóvember. Fríða Rós Valdimarsdóttir formaður Kven- réttindafélagsins ávarpaði fundinn 30. nóvember og ræddi um baráttuna fyrir kosningarétti, kvennafrí og #MeToo. STAFRÆN VARÐVeISLA KVeNNASögU 5. desember héldu Kvenréttindafélagið og Kvennasögusafnið árlegan jólafund í Þjóðarbókhlöðunni. Á fundinum var fjallað um nýjar leiðir að söfnun og miðlun sögulegs femínísks efnis á stafrænni öld. Kristín Jónsdóttir kynnti nýjan vef um Kvennalistann og Ásta Kristín Benediktsdóttir kynnti heimildasöfnunarverkefnið Hinsegin huldukonur. Einnig ávörpuðu fundinn Rakel Adolphsdóttir forstöðumaður Kvenna sögu- safnsins og Fríða Rós Valdimars dóttir frá Kvenréttindafélagi Íslands. Tímaritið 19. júní Ársrit félagsins, 19. júní, kom út bæði í prentuðu formi og rafrænu. Blaðinu var dreift til félagsmanna og auglýsenda endur- gjaldslaust. Sérstakt viðfangsefni tölublaðsins var kvennabyltingar. Guðrún Lára Pétursdóttir var ritstýra og með henni í ritnefnd sátu Aðalheiður Ármann, Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, Ragnheiður Davíðsdóttir, Sandra Kristín Jónasdóttir og Steinunn Ólína Hafliðadóttir. Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir sá um umbrot blaðsins. Lóa Hjálmtýsdóttir gerði kápumynd. Blaðið var prentað í Odda, umhverfisvottaðri prentsmiðju. Áslaug Jóhannesdóttir tók að sér að safna auglýsingum í blaðið þriðja árið í röð og gekk fjáröflun vonum framar. Í annað skiptið í röð reyndist félaginu kleift að greiða utanaðkomandi greinahöfundum fyrir vinnu sína. Ákveðið var að prófa að bjóða bókasöfnum landsins að ganga í áskrift að blaðinu. Í lok árs voru komnir 20 áskrifendur. Við ættum öll að vera femínistar Kvenréttindafélag Íslands fagnaði 110 ára afmæli sínu á árinu og af því tilefni gaf félagið öllum nýnemum í framhaldsskólum landsins bókina Við ættum öll að vera femínistar (e. We Should All Be Feminists) eftir Chimamanda Ngozi Adichie, alls um 4300 ungmennum. Bókaforlagið Benedikt sá um útgáfu bókarinnar og Ingunn Ásdísardóttir þýddi. Framhaldsskólar landsins sáu um að dreifa bókinni til nemenda. Útgáfan var styrkt af Jafnréttissjóði. Stjórnmálaskóli kvenna af erlendum uppruna Kvenréttindafélag Íslands stóð fyrir stjórnmálaskóla fyrir konur af erlendum uppruna þar sem farið var yfir starf og stefnumál helstu stjórnmálaflokka og hagsmunasamtaka, farið yfir „óskrifaðar reglur“ stjórnmálanna og unnið að tengslamyndun þátttakenda. Tæplega 20 konur tóku þátt í námskeiðinu sem stóð yfir í sjö vikur. Sabine Leskopf varaborgarfulltrúi kenndi námskeiðið og fjöldi gestafyrirlesara sótti námskeiðið heim, fulltrúar allra flokka sem eiga sæti á Alþingi og konur af erlendum uppruna sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.