19. júní - 19.06.2018, Qupperneq 112
110 | 19. júní 2018
í ríkisstjórn og flokka á Alþingi að tryggja jöfn
kynjahlutföll í opinberum nefndum og ráðum.
24. febrúar 2017 mótmælti Kven-
réttinda félagið áætlunum ríkisstjórnar um
að stofna nýtt dómstig, Landsrétt, án þess
að hafa jafnréttissjónarmið í huga og hvatti
dómsmálaráðherra og Alþingi til þess að
vinna markvisst að því að jafna kynjahlutföll
innan dómskerfisins við skipun nýrra dómara í
Landsrétt.
12. maí 2017 krafðist Kvenréttindafélag
Íslands þess að dómsmálaráðherra fylgdi
jafnréttis lögum og tryggði jöfn kynjahlutföll
í nýjum Landsrétti í kjölfar þess að nefnd sem
mat hæfi dómara sendi frá sér lista yfir 15
einstaklinga sem þóttu hæfastir til að taka sæti
í réttinum en á þeim lista voru 5 konur og 10
karlar.
31. maí 2017 afhenti Kvenréttindafélag
Íslands lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
viður kenningu fyrir gott starf í þágu jafnréttis
kynjanna. Í tilefni 110 ára afmælis Kven-
réttindafélags Íslands vildi stjórn félagsins
veita viðurkenningu þeim aðila sem hefði
með framúrskarandi hætti bætt frelsi kvenna
undanfarin misseri. Fyrir valinu varð lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu fyrir að setja ofbeldi
gegn konum í forgang innan embættisins.
3. júlí 2017 skoraði Kvenréttindafélag
Íslands á ferðamálayfirvöld á Íslandi og
fyrirtæki í ferðaþjónustu að bregðast við þeim
fréttum sem fluttar höfðu verið um að á Íslandi
hefði orðið sprenging í kaupum á vændi og
að kaupendur vændis væru að stórum hluta
ferðamenn. Hvatti félagið aðila í ferðaþjónustu
til að upplýsa ferðamenn sem hingað koma um
saknæmi vændiskaupa.
15. september 2017 sendi Kvenréttinda-
félag Íslands frá sér ályktun í kjölfar falls
ríkisstjórnarinnar og benti félagið á að tímamót
ættu sér stað í íslensku samfélagi, að ríkisstjórn
landsins félli ekki vegna pólitísks ágreinings
atvinnustjórnmála manna heldur vegna þess
að konur höfðu hátt um kyn ferðisofbeldi sem
þær hefðu verið beittar. Félagið hvatti alla,
til hægri og vinstri, konur, karlar og alla þar á
milli, til að taka höndum saman um að skapa
samfélag sem við værum stolt af, samfélag sem
samtryggði okkur öll, ekki bara suma og benti
á myllumerkið #höfumhátt.
30. október 2017 sendi Kvenréttindafélag
Íslands frá sér ályktun þar sem það lýsti yfir
gríðarlegum vonbrigðum með fækkun kvenna
á þingi í kjölfar Alþingiskosninga 2017. Í
kosningunum 2016 náðu 30 konur kjöri en eftir
kosningarnar 2017 tóku aðeins 24 konur sæti
á Alþingi. Það þýðir að hlutfall kvenna á þingi
lækkaði úr 47,6% niður í 38,1%. Hvatti félagið
alþingsmenn til að tryggja jöfn kynjahlutföll
ráðherra og að jafnréttismál yrðu sett í forgang
við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Hvatti félagið
stjórnmálahreyfingar til að tryggja jafna
þátttöku kvenna í starfi og stefnumótun í
flokkastarfi. Hvatti félagið þingflokka til að
hafa jafnréttissjónarmið ávallt í huga í starfi
sínu og tryggja jöfn kynjahlutföll í opinberum
nefndum og ráðum.
14. nóvember 2017 skoraði Kven-
réttindafélag Íslands á þá alþingismenn sem
fengju það verkefni að mynda nýja ríkisstjórn
að tryggja jöfn kynjahlutföll ráðherra og
að setja jafnréttismál í forgang við myndun
nýrrar ríkisstjórnar. Enn fremur hvatti félagið
þingflokka til að að hafa jafnréttissjónarmið
ávallt í huga í starfi sínu og tryggja jöfn
kynjahlutföll í opinberum nefndum og ráðum.
Benti Kvenréttindafélagið á að þetta væri í
fjórða skipti á tæpu ári sem það hefði þurft að
senda frá sér hvatningu til stjórnmálaflokka
um að tryggja jafnrétti í stjórnarmyndun
(15.11.2016, 9.1.2017, 30.10.2017).
21. nóvember 2017 sendi Kven-
réttindafélag Íslands frá sér ályktun í kjölfar
þess að 306 stjórnmálakonur sendu frá sér
áskorun vegna kynferðisofbeldis og áreitni
ásamt sögum af áreitni og ofbeldi sem konur
hafa orðið fyrir í íslenskum stjórnmálum.
Í ályktuninni var jafnframt tekið fram að
Kvenréttindafélag Íslands stæði með öllum
konum sem stigju fram og drægju frá tjöldin,
vörpuðu ljósi á ofbeldi og kynferðislega
áreitni sem meðal annars valdamenn þessa
lands stunduðu. Félagið liti með aðdáun til
þeirra kvenna sem hefðu tekið upp gunnfána